Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. apríl 2025 13:01 Scott Parker var tolleraður eftir sigur Burnley á Leeds United í gær. Með sigrinum tryggði Burnley sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. getty/James Gill Burnley tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í gær. Þetta er í þriðja sinn sem knattspyrnustjórinn Scott Parker kemur liði upp úr B-deildinni í úrvalsdeildina í fyrstu tilraun.
Burnley vann 2-1 sigur á Sheffield United í gær og þar með var ljóst að liðið hefði endurheimt sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni. Sigur Burnley tryggði Leeds United einnig úrvalsdeildarsæti. Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en þrátt fyrir það var stjóri liðsins, Vincent Kompany, ráðinn stjóri Bayern München í sumar. Parker tók við starfi hans og hefur gert afar góða hluti með Burnley. Liðið hefur aðeins tapað tveimur af 44 leikjum sínum í B-deildinni og er í 2. sæti með 94 stig, jafn mörg og topplið Leeds. Varnarleikur Burnley hefur verið afar sterkur en liðið hefur aðeins fengið á sig fimmtán mörk í deildinni á tímabilinu. Parker er ekki óvanur að koma liðum upp úr B-deildinni en undir hans stjórn komst Fulham upp í ensku úrvalsdeildina tímabilið 2019-20 og Bournemouth 2021-22. Burnley are the third team Scott Parker has taken from the Championship to the Premier League at the first time of asking ⬆️ pic.twitter.com/gEMdKnhDjk— Premier League (@premierleague) April 22, 2025 Öllu verr hefur gengið hjá Parker þegar í úrvalsdeildina er komið. Fulham féll tímabilið 2020-21 og Parker yfirgaf félagið um sumarið. Hann var ekki lengi atvinnulaus en sama dag og hann hætti með Fulham var hann ráðinn stjóri Bournemouth. Parker kom Bournemouth upp úr B-deildinni í fyrstu tilraun en var rekinn skömmu eftir 9-0 tap fyrir Liverpool snemma tímabils 2022-23. Parker fór þaðan til Club Brugge í Belgíu en var svo ráðinn stjóri Burnley síðasta sumar. Ljóst er að Leicester City, Ipswich Town og Southampton falla úr ensku úrvalsdeildinni. Leeds, Burnley og liðið sem vinnur umspilið taka sæti þeirra. Þegar tvær umferðir eru eftir eru Sheffield United, Sunderland, Bristol City og Coventry City í umspilssætunum.
Enski boltinn Mest lesið „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira