Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. febrúar 2025 15:28 Skiltið smáa. Álftanes auglýsir leik kvöldsins gegn Tindastóli í Bónus deild karla með líklega minnsta skilti sem fyrirfinnst.
Álftanes hefur verið á góðri siglingu að undanförnu og er komið upp í 5. sæti Bónus deildarinnar eftir fjóra sigra í röð. Stórt og mikið próf bíður Álftnesinga í kvöld þegar þeir taka á móti Stólunum, toppliði deildarinnar. Álftnesingar vilja fá sem flesta í Kaldalónshöllina og létu því prenta skilti til auglýsa leikinn. Mistök urðu hins vegar í framleiðslu og skiltið var talsvert minna en það átti að vera. Álftnesingar dóu þó ekki ráðalausir, settu skiltið á vörubretti og komu því fyrir á hringtorgi í bænum eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan. Líkt og Álftanes hefur Tindastóll unnið fjóra leiki í röð. Stólarnir eru með 28 stig, jafn mörg og Stjörnumenn en eru á toppnum þar sem þeir unnu báða leikina gegn Garðbæingum. Álftanes er aðeins tveimur stigum frá Val sem er í 4. sæti deildarinnar og því er enn möguleiki fyrir strákana hans Kjartans Atla Kjartanssonar að ná heimavallarrétti fyrir úrslitakeppnina. Leikur Álftaness og Tindastóls hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á rás Bónus deildarinnar.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Garðabær Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira