Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 27. desember 2024 07:17 Tedros Adhanom Ghebreyesus, sakaði ekki í árásinni. Mynd/AP Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, var staddur á flugvellinum í Sanaa í Jemen í gær þegar Ísraelsmenn gerðu loftárás á völlinn.
Þrír létust í árásinni á völlinn og fjöldi særðist og þá gerðu Ísraelar einnig árás í nágrenninu þar sem aðrir þrír létust. Framkvæmdastjórann, Tedros Adhanom Ghebreyesus sakaði ekki en hann var um það bil að ganga um borð í flugvél ásamt starfsliði sínu þegar árásin á flugvöllinn var gerð. Árásum Ísraela var beint gegn uppreisnarhópi Húta sem stjórna stórum hluta Yemens en þeir njóta stuðnings frá Íran. Ísraelar segja að skotmörk þeirra hafi verið hernaðarleg en Breska ríkisútvarpið segir óljóst hvor hinir látnu séu óbreyttir borgarar eða uppreisnarmenn. Ghebreyesus var staddur í Jemen til þess að ræða um lausn gísla sem Hútar hafa í haldi, en þar er um starfsfólkd Sameinuðu þjóðanna að ræða. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres segir að árásin valdi sér áhyggjum en undanfarið hafa Ísreaelar hert mjög á sókn sinni gegn Hútum. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísreala sagði í yfirlýsingu stuttu eftir árásirnar að þeim verði haldið áfram uns Hútar verði sigraðir. Hann minntist ekki á veru Ghebreyesus og er óljóst hvort Ísraelar hafi vitað af sendinefndinni. Ísrael gerir loftárásir á Jemen
Jemen Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira