Gjöfin fyrir grillarann og pizzagerðina fæst hjá Grillkofanum Grillkofinn 2. desember 2024 09:08 „Við höfum verið umboðs og dreifingaraðili Ooni pizzaofna í nokkur ár og höfum bætt við okkur spennandi merkjum eins og Kamado Joe og Masterbuilt sem eru kolagrillmerki,“ segir Stefán Claessen, eigandi Grillkofans. Grillkofinn er fjölskyldurekin sérvöruverslun sem selur allt fyrir pizzagerðina og grillið. Nýlega sameinuðust Grillkofinn og pizzaofnar.is undir hatti Grillkofans þar sem hægt er að fá ráðgjöf varðandi val á grillum og pizzaofnum. „
Við höfum verið umboðs og dreifingaraðili Ooni pizzaofna í nokkur ár og höfum bætt við okkur spennandi merkjum eins og Kamado Joe og Masterbuilt sem eru kolagrillmerki,“ segir Stefán Claessen, eigandi Grillkofans. Þetta byrjaði allt á Ooni „Árið 2020 keyptum við litla netverslun sem sérhæfði sig í pizzaofnum og stuttu eftir það má segja að Íslendingar hafi orðið sjúkir í heimagerða eldbakaða pizzu,“ segir Stefán. „Í dag bjóðum við upp á landsins mesta úrval af pizzaofnum og aukahlutum fyrir pizzagerðina.“ Pizzaofnarnir frá Ooni komu fyrst á markað árið 2012 og eru í dag gull staðallinn þegar kemur að pizzaofnum að sögn Stefáns. „Ofnarnir ná 500°C hita sem þýðir að pizzan verður tilbúin á 1-2 mínútum. Hægt er að fá pizzaofna sem ganga eingöngu fyrir gasi, við og kolaofna sem er hægt að bæta á gasbrennara. Gas ofnarnir fást í 12“, 16“ og 24“ stærðum á meðan viðar og kola pizzaofnarnir fást í 12“ og 16“ stærðum.“ Pizzaofnarnir frá Ooni komu fyrst á markað árið 2012 og eru í dag gull staðallinn þegar kemur að pizzaofnum. Rafmagns pizzaofn sem má nota inni og úti! Í fyrra setti Ooni á markað byltingarkenndan pizzaofn sem gengur fyrir rafmagni og má nota bæði inni og úti. „Ofninn nær 450°C sem er fullkomið til að gera alvöru heimagerða pizzu. Það er frábært að eiga slíkan grip þegar veðrið á Íslandi er þannig að maður nennir ekki út að gera eldbakaða pizzu.“ Kolagrillaður matur er einfaldlega betri! Kamado Joe er grillmerki sem býður upp á keramik kolagrill í svokölluðum „kamado“ stíl. „Það er hægt að reykja, grilla, gera pizzur og allt mögulegt sem tengist því að grilla. Allir sem hafa smakkað kolagrillaðan mat geta fullyrt að kolagrillaður matur er einfaldlega betri.“ Það er lítið mál að útbúa ljúffenga pizzu með pizzaofnunum frá Ooni. Masterbuilt grillin eru ótrúlega einföld kolagrill sem er hægt að stýra með stjórnborði á grillinu sjálfu eða með símanum. „Þú einfaldlega hleður kolum í grillið, setur kveikikubb í það og svo sér tölvan í grillinu um að viðhalda hitanum sem þú stillir. Fyrir þá sem vilja kolagrillaðan mat en kunna ekki að grilla með kolum þá eru þessi grill fullkomin. Einnig eru til stærri og þróaðri grill fyrir grillmeistarann.“ Aukahlutirnir skipta miklu máli „Hvort sem þú ert að gera pizzu eða grilla þá skiptir máli að hafa aukahluti sem einfalda þér verkin,“ segir Stefán. „Þegar kemur að pizzugerðinni þá erum við með mikið úrval aukahluta sem hjálpa þér að fullkomna heimagerðu pizzuna. Fyrir grillarann þá er kjöthitamælir eitt það mikilvægasta í vopnabúrinu. Þannig færðu fullkomna steik og getur verið viss um að kjúklingurinn sé fulleldaður.“ Grillkofinn býður einnig upp á mikið úrval af kjöthitamælum sem sýna kjarnhita samstundis og einnig snjall kjöthitamæla sem er hægt að fylgjast með í appi í símanum. „Eina sem þú gerir er að stinga kjöthitamælinum í kjötið og appið segir þér þegar steikin er tilbúin.“ Pottarnir og pönnurnar frá Skottsberg eru allar án eiturefna og um leið húðaðar með lífrænni olíu. Eiturefnalausir pottar og pönnur með lífstíðarábyrgð Grillkofinn hóf nýlega sölu á pottum og pönnum frá merkinu Skottsberg en þær vörur eru allar án eiturefna og um leið húðaðar með lífrænni olíu. „Það þýðir að pönnurnar eru klárar til notkunar beint úr kassanum. Allir pottar og pönnur frá Skottsberg eru á einstaklega góðu verði og svo fylgir þeim líka lífstíðarábyrgð.“ Gott krydd gerir gæfumuninn Grillaður matur verður enn betri með góðum kryddi og að sjálfsögðu býður Grillkofinn upp á mikið úrval af kryddum fyrir allskonar kjöt, fisk og grænmeti. „Það ættu allir að finna eitthvað við hæfi hjá okkur. Einnig höfum við úrval af chili hunangi sem er fullkomið til að bragðbæta pizzuna, kjötið eða grænmetið.“ Grillkofinn er með verslun í Tónahvarfi 10, 203 Kópavogi, þar sem viðskiptavinir fá persónulega þjónustu og sérfræði ráðgjöf þegar það kemur að því að velja sér pizzaofn/grill eða aukahluti og krydd. Einnig sendir Grillkofinn vörur út á land sem eru keyptar á grillkofinn.is.
Matur Jól Mest lesið One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Bíó og sjónvarp Hvernig fer Óskarinn? Bíó og sjónvarp Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or Matur Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Lífið samstarf Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Lífið Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Tónlist Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár Áskorun Fleiri fréttir Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira