Íslendingar ginnkeyptir fyrir pólitískum samsæriskenningum Boði Logason skrifar 2. september 2024 09:47 Stjórnmálafræðiprófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir eru að byrja með nýtt hlaðvarp um samsæriskenningar. Mynd/Vilhelm Íslendingar eru ginnkeyptari fyrir pólitískum samsæriskenningum heldur íbúar í öðrum ríkjum Norðurlanda. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrsta þætti Skuggavaldsins en í þessu nýja hlaðvarpi ræða stjórnmálafræðiprófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum.
Íslendingar eru til dæmis líklegri til þess að gruna bandarísk stjórnvöld um græsku varðandi hryðjuverkaárásina 11. september 2001 og þeir óttast í meira mæli en aðrir íbúar Norðurlanda að illvirkjar ætli sér að skipta út hinni kristnu Evrópu fyrir Íslam. Á hinn bóginn eru Íslendingar ólíklegri til þess að trúa samsæriskenningum um heilsufarsmál og misferli í vísindum. Íslendingar eru þannig ekki trúaðir á grunsemdir um að kórónaveirunni hafi verið dreift að undirlagi illvirkja eða að bólusetningar valdi einhverfu, nokkuð sem er útbreiddara í öðrum löndum. Hlusta má á þáttinn hér: Aðspurð hvort að þessar niðurstöður komi á óvart segir Hulda: „Já þær gerðu það í fyrstu því ég átti ekki von á að sjá svona mikinn mun eftir því hvort samsæriskenningarnar væru af pólitískum toga eða vísindalegum, því við sjáum það ekki endilega hjá öðrum þjóðum. Skýringin er líklega sú að pólitísk tortryggni hefur ekki alveg náð sér á strik eftir efnahagshrunið á meðan trú Íslendinga á vísindum og heilbrigðiskerfinu hefur ávallt verið mikil. Talsvert af þessum gögnum var safnað í COVID faraldrinum og við vitum að þá ríkti mikið traust og ánægja til vísinda og heilbrigðisstarfsfólks.“ En hvers vegna hlaðvarp um samsæriskenningar? „Samsæriskenningingum hefur hratt vaxið fiskur um hrygg samfara örum samfélagsbreytingum og hafa ekki bara breiðst skarpt út að undanförnu heldur hafa þær núorðið mun meiri áhrif í bæði stjórnmálum og almennri samfélagsumræðu heldur en verið hefur síðustu áratugi“, segir Eiríkur og heldur áfram: „Áhrifa samsæriskenninga gætti til að mynda í tengslum við Brexit í Bretlandi, í stjórnartíð Donalds Trump í Bandaríkjunum og í kringum kórónaveirufaraldurinn á heimsvísu, svo dæmi séu tekin.“ Hulda bendir þó á að samsæriskenningar séu ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu. Þær hafi þó óumdeilanlega orðið meira áberandi að undanförnu samfara tæknibyltingu í samskiptum og upplýsingadreifingu. Í fyrsta þætti af Skuggavaldinu fjalla Eiríkur og Hulda um norrænar samsæriskenningar, þar sem meðal annars morðið á Olaf Palme er skoðað í þaula.Mynd/Vilhelm Eiríkur nefnir að samsæriskenningar spanni víðfema flóru, allt frá hinu léttvæga og fyndna til hins alvarlega, jafnvel hættulega. Fólk skemmtir sér yfir kenningum um að eðlufólk úr geimnum stýri heiminum en meiri þungi er yfir ýmsum frægum kenningum á borð við djúpríkiskenninguna í Bandaríkjunum, ótta um heimsyfirráð Gyðinga eða ráðagerðir Íslamistar um menningarlega yfirtöku í Evrópu. Í máli Huldu kemur fram að samsæriskenningar geta grafið undan samfélagsgerðinni en stundum opinbera þær hulda valdaþræði og veita yfirvöldum þar með æskilegt viðnám. Í þessum fyrsta þætti sem nú er aðgengilegur á hlaðvarpsveitum ræða þau Hulda og Eiríkur um Norrænar samsæriskenningar. Stórir atburðir kalla gjarnan fram samsæriskenningar Í kjölfar morðsins á Olaf Palme forsætisráðherra Svíþjóðar þann 28. febrúar árið 1986 spruttu fram allra handa samsæriskenningar, sem fengu vængi við það hvað illa gekk að upplýsa málið. Ýmsir illvirkjar voru kallaðir til sögunnar, til dæmis hryðjuverkasveitir Kúrda og aðskilnaðarstjórnin í Suður Afríku. Glæpasagnahöfundurinn Stieg Larsson gaf til dæmis í skyn að suður-afrískar öryggis- og leyniþjónustur hafi staðið á bak við morðið fyrir milligöngu sænsks málaliða sem aðhylltist harða hægri stefnu. Í þættinum lýsa Eiríkur og Hulda því hvernig Norðurlöndin misstu sakleysi sitt í kjölfar morðsins á Palme og urðu aldrei söm eftir. Rannsóknin reyndist tröllvaxin og hafa 130 einstaklingar játað morðið fyrir ótal rannsakendum. Helgireitur sem má ekki raska Sömu sögu má segja af Estonia slysinu þegar samnefnd farþegaferja sökk á leið frá Tallinn í Eistlandi til Stokkhólms í Svíþjóð á milli 27.-28. september árið 1994. Margir áttu örðugt með að kyngja því að aðeins slæmt veður hafi valdið svo miklum skaða og beindu margir sjónum að meintum leynilegum vopnaflutningi frá tiltölulega nýföllnum Sovétríkjunum. Sumir beindu fingri að breskum stjórnvöldum en aðrir töldu að rússneskt tundurdufl frá kafbáti hafi grandað ferjunni. Það varð sem vatn á myllu samsæriskenningasmiða að yfirvöld ákváðu að draga ekki skipið á land heldur var hafsbotninn þar sem skipið liggur skilgreint sem helgireitur sem ekki megi raska. Díana prinsessa og Kurt Cobain Í máli Huldu og Eiríks kemur einnig fram að langvarandi samsæriskenningar hafi lifað á Norðurlöndum um Frímúrara og Gyðinga og að djúpstæður ótti hafi verið í gegnum aldir í garð allskonar satanískra hulduhópa. Til að mynda voru lengi á kreiki sögur um að leynihópar fórnuðu kristnum börnum og sendu blóð þeirra og lík til Tyrkland –– til svokallaðs Hunda-Tyrklands eins og sagt var –– til að greiða aldagamla skuld við Ottómanveldið. Í næstu þáttum munu Eiríkur og Hulda fjalla um kenningar í kringum andlát Díönu prinsessu, ótta við að illvirkjar ætli sér að koma á nýrri heimskipan og um Qanon samsæriskenninguna svo eitthvað sé nefnt. Þá mun dauða Kurt Cobain bera á góma. Eiríkur og Hulda segja að Skuggavaldið fjalli vítt og breitt um samsæriskenningar í sögu og samtíð en áhugi almennings og áhyggjur af fyrirbærinu hefur vaxið svo nálgast siðfár á köflum. Fleiri opna hlaðvarpsþætti má hlusta á á hlaðvarpssíðu Vísis.
Menning Morðið á Olof Palme Skuggavaldið Mest lesið Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Lífið „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Lífið Sækir um skilnað frá Schneider Bíó og sjónvarp Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Tónlist Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry Lífið Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Bíó og sjónvarp „Ég er óléttur“ Lífið Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Tíska og hönnun Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum Lífið Fleiri fréttir Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“