Heimsmeistari eftir að hafa næstum misst af mótinu Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 6. ágúst 2024 14:17 Ella stefnir ótrauð áfram og vonar að þessi árangur muni ýta undir að hún hljóti áframhaldandi fjárstuðning frá fólki og fyrirtækjum til að keppa á mótum erlendis. Samsett „Ég er búin að sanna það fyrir sjálfri mér núna að það er ekkert sem ég get ekki gert, og ég vil sýna öðrum að það sé allt hægt ef maður ætlar sér það,“ segir Elínborg Björnsdóttir sem á dögunum varð heimsmeistari í flokki fatlaðra á heimsmeistaramótinu í pílukasti sem fram fór í Edinborg á Skotlandi.
Vísir ræddi við Elínborgu þann 21. júlí síðastliðinn en líf hennar umturnaðist eftir alvarlegt bílslys í janúar árið 2020. Afleiðingarnar voru þær að hún lamaðist algjörlega á vinstri hlið líkamans. Um það leyti sem hún lenti í slysinu hafði hún stundað pílukast í meira en tvo áratugi – og skarað fram úr. Hún keppti með landsliðinu í pílukasti í tíu ár og vann til fjölda verðlauna. Þrátt fyrir hörmulegar afleiðingar slyssins hefur Elínborg, eða Ella eins og hún er kölluð, alltaf verið staðráðin í halda áfram og finna gleði í lífinu. Þar hefur pílukastið verið hennar helsta haldreipi. Það hefur hins vegar reynst henni hægara sagt en gert að fá fjárhagslegan stuðning sem fatlaður einstaklingur, öfugt við þegar hún var ófötluð. Eftir að hafa lent í öðru sæti á Evrópumeistaramóti fatlaðra bæði í vor og í fyrra vann Ella sér inn þátttökurétt á fyrrnefndu heimsmeistaramóti í Skotlandi sem haldið var um síðastliðna helgi. Í fyrrnefndri frétt Vísis kom fram að heildarkostnaðurinn við ferðina væri í kringum tvær milljónir og að Ella þyrfti nauðsynlega á fjárhagslegum stuðning að halda til að komast á mótið. Ljóst var að tíminn var naumur. Viðbrögðin voru með ólíkindum Ella segir viðbrögðin við frétt Vísis hafa verið hreint ótrúleg og fjölmargir ókunnugir einstaklingar hafi stutt við hana með frjálsum framlögum. Þá hafi Stoð stoðtækasmíði veitt henni ríflegan styrk upp á 100 þúsund krónur. Auk þess barst henni ríflegur styrkur frá Ásmundi Friðrikssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, en hann heldur árlega skötumessu þar sem aðgangseyrir rennur til góðgerðarmála. Ásmundur birti færslu á facebooksíðu sinni síðastliðinn sunnudag þegar ljóst var að Ella hefði landað heimsmeistaratitlinum. Ella fékk fjárhagslegan stuðning úr fleiri áttum. „Þegar við eigendurnir lásum fréttina um hana Elínborgu á Vísi þá vorum við allir sammála um þetta væri málefni sem við vildum styrkja. Við þurftum að bregðast mjög hratt við þar sem það var stutt í næsta mót hjá Elínborgu. Í kjölfarið tókum við þá ákvörðun að halda styrktarkvöld fyrir hana á Oche. Allur ágóði af pílunni þessi tvö kvöld rennur í styrktarsjóðinn hennar og náðist að safna 345 þúsund krónum,“ segir Mikael Harðarson framkvæmdastjóri Oche í samtali við Vísi. Elínborg og Mikael.Aðsend „Við vonum innilega að styrkurinn hjálpi henni að fjármagna hennar næstu ferðalög.“ Er rétt að byrja Í samtali við Vísi segist Ella vera í skýjunum eftir árangur helgarinnar. „Ég er mjög stolt af sjálfri mér; stolt af því að hafa aldrei gefist upp. Fyrsti dagurinn á móti byrjaði mjög vel og það ýtti undir drifkraftinn hjá mér. Ég tók einfaldlega þá ákvörðun að ég ætlaði að verða heimsmeistari. Og eftir því sem á leið þá fann ég það bara á mér að mér myndi takast það. Ég bara vissi það.“ Hún segist óendanlega þakklát öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem gerðu henni kleift að komast á mótið – og sigra svo með glæsibrag. Þökk sé þeim náði hún að safna upp í heildarkostnað ferðarinnar – og gott betur en það. Það sem safnaðist umfram mun Elínborg nota tilað fjármagna keppnisferðir í framtíðinni. Hún stefnir ótrauð áfram og vonar að þessi árangur muni ýta undir að hún hljóti áframhaldandi fjárstuðning frá fólki og fyrirtækjum til að keppa á mótum erlendis. „Ég er ennþá að komast niður á jörðina eftir þetta allt saman. Það er alveg magnað hvað maður getur komið sjálfum sér óvart ef maður lendir í ómögulegum aðstæðum.“
Málefni fatlaðs fólks Ólympíumót fatlaðra Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Fleiri fréttir Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Sjá meira