Körfubolti

„Virki­lega lé­leg frammi­staða heilt á litið“

Siggeir Ævarsson skrifar
Þorleifur Ólafsson var hundfúll með frammistöðu sinna kvenna í kvöld
Þorleifur Ólafsson var hundfúll með frammistöðu sinna kvenna í kvöld Vísir/Vilhelm

Þorleifur Ólafsson var virkilega ósáttur, jafnvel brjálaður, yfir frammistöðu sinna kvenna í kvöld þegar liðið tapaði 66-58 gegn Njarðvík í öðrum leik liðanna í 4-liða úrslitum Subway-deildar kvenna.

Njarðvíkingar náðu upp 20 stiga forskoti þegar mest var en sóknarleikur Grindvíkinga var hvorki fugl né fiskur á löngum köflum, þá sérstaklega í 3. leikhluta.

„Bara virkilega lélegt sóknarlega, leyfðum þeim að stjórna því sem við vorum að gera. Bara lélegt yfir höfuð.“

Njarðvíkingar héldu veislu í teig Grindavíkur í kvöld, sóttu 19 sóknarfráköst og Isabella Sigurðardóttir skoraði 21 stig. Það var engu líkara en Grindvíkingar hefðu gleymt hvernig á að stíga út.

„Það var mjög lélegt. Eins vel og við fráköstuðum síðast þá náðum við ekki að fylgja því eftir núna og þær voru bara grimmari. Á mörgum sviðum. Þegar góðar varnir komu hjá okkur náðu þær að taka sóknarfráköst alltof oft. Bara virkilega léleg frammistaða heilt á litið. Ég var ánægður með kraftinn í restina, einhvern veginn að gefa þessu séns. Við gáfumst ekki upp en það gekk ekkert upp sóknarlega og við þurfum að laga það.“

Þorleifur var ekkert endilega viss um að hans konur gætu byggt á þessu áhlaupi í restina í næsta leik og taldi einsýnt að þær þyrftu að rífa sig í gang nú þegar bakið er komið upp við vegginn fræga.

„Selena var náttúrulega út af á þessum tíma og hún er rosalega mikið með boltann. Við svona gengum á lagið og náðum einhverju áhlaupi en það er ekki nóg að koma bara með einhvern kraft í restina og ætlast til að vinna þetta þá. Njarðvík var bara miklu betri í kvöld og ef við ætlum eitthvað að halda okkur inni í þessari úrslitakeppni þurfum við að gjöra svo vel og rífa okkur í gang.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×