Lífið

Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Jón Daði og fjölskylda eru bú­sett í Bretland.
Jón Daði og fjölskylda eru bú­sett í Bretland. Skjáskot/María Ósk

Jón Daði Böðvarsson knattspyrnumaður og unnusta hans María Ósk Skúladóttir viðskiptafræðingur eignuðust sitt annað barn síðastliðinn þriðjudag, þann 30.apríl. Fyr­ir eiga þau Sunn­evu Sif sem er fimm ára.

„María ég er svo stoltur af þér. Þú stóðst þig frábærlega í gegnum langa og erfiða fæðingu. Lífið er dýrmætt. Ég er afar þakklátur,“ segir Jón Daði meðal annars í færslu á Instagram-síðu sinni og birti mynd af syni þeirra. 

Jón Daði og María greindu frá því í desember að þau ættu von á sínu öðru barni í apríl.

Fjölskyldan eru bú­sett í Bretlandi, þar sem þau hafa búið síðastliðin ár, þar sem Jón Daði spil­ar með Bolt­on Wand­erers. Fyrir það spilaði hann með enska B-deildarliðsins Wolves og Reading. 


Tengdar fréttir

Jón Daði skoraði tvö og gæti farið upp

Jón Daði Böðvarsson átti sinn þátt í 5-2 sigri Bolton á Reading í ensku C-deildinni í fótbolta í dag og er Bolton í harðri baráttu um að komast upp í næstefstu deild.

„Þrjú verða fjögur“

Atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Jón Daði Böðvarsson og unnusta hans, María Ósk Skúladóttir, viðskiptafræðingur eiga von á sínu öðru barni í apríl næstkomandi. Parið deilir gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×