Fögnuðu lögleiðingu kannabisefna Ólafur Björn Sverrisson skrifar 1. apríl 2024 14:24 „Farðu varlega, hasshaus,“ segir á skilti mótmælanda við Brandenborgarhliðið við miðnætti. Getty Kannabisunnendur í Þýskalandi gátu fagnað vel og innilega við Brandenborgarhliðið á miðnætti þegar ný lög, sem gera einkaneyslu kannabisefna löglega, tóku gildi. Efasemdir eru hins vegar uppi um ágæti lögleiðingarinnar.
Með nýrri löggjöf er mega fullorðnir hafa allt að 25 grömm af kannabisefnum meðferðis. Þá er einnig heimilt að rækta allt að þrjár maríhúana-plöntur í heimahúsum. Á miðnætti söfnuðust grasreykingarmenn við Brandenborgarhliðið í höfuðborginni Berlín til að fagna lögleiðingunni. Hart hefur verið tekist á um lagabreytinguna á þingi. Þeir sem eru fylgjandi lögleiðingunni hafa haldið því fram að með breytingunni sé ungt fólk betur varið gegn spilltu kannabis. „Kannabisneysla var til staðar í gær. Hún hefur aukist,“ segir heilbrigðisráðherrann Karl Lauterbach. „Nú er hún komin af „tabú-svæðinu“. Með breytingunni er betur hægt að tækla fíkn, sinna forvörnum og slá á svarta markaðinn.“ Dómsmálaráðherra landsins hefur auk þess bent á að með lögleiðingunni minnki álag á lögreglu. Það eru hins vegar ekki allir jafn sáttir við breytinguna. Þar á meðal Katja Seidel, sálfræðingur á fíknimiðstöð í Berlín. „Frá okkar sjónarhóli er þetta hörmung. Aðgengi að efnunum verður betra, ímyndin breytist meðal ungmenna,“ er haft eftir Seidel í frétt AFP. Hún telur ljóst að neysla muni aukast til muna.
Þýskaland Kannabis Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Innlent Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Innlent Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Erlent Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Innlent Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Innlent „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Fleiri fréttir Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Sjá meira