Skotheld ráð kynfræðings að góðum prófíl á þínu uppáhalds stefnumótaforriti Indíana Rós Ægisdóttir skrifar 19. mars 2024 20:00 Indíana Rós er kynfræðingur og með M.Ed gráðu í Kynfræði frá Widener University auk þess að vera með BSc í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Vísir Ókei, í draumaheimi erum við ekki að „dæma bókina út frá kápunni” og viljum öll þykjast gera betur en það, en ég meina, við skulum öll vera hreinskilin. Á stefnumótaforritum erum við einmitt öll að gera nákvæmlega það og þá er eins gott að kápan okkar sé eins góð og hún getur verið! Kynlífið með Indíönu Rós kynfræðingi er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Indíana Rós lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Indíönu Rós spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni. Settu nú upplýsingar um þig og segðu satt Ertu 47 ára en stilltir prófílinn þinn á 35? Af hverju? Hvern ertu að reyna plata? Við búum á Íslandi og það þarf engan rannsóknarlögreglumann til að fara inn á Íslendingabók og sjá að enginn með þessu nafni sé fæddur þetta ár. Heiðarleiki er sexy og byrjaðu á því. Settu inn menntunina þína, starf eða áhugamál. Það getur verið mjög erfitt að byrja spjall svo gefðu fólki eitthvað til að grípa í til að tengja við eða spyrja þig út í. Heiðarleikinn skiptir miklu máli þegar nýr prófíll er búinn til á stefnumótaöppum. Vísir/Getty Áfram með heiðarleikann Segðu frá hverju, eða hvaða eiginleikum þú ert að leita að,frekar en hvað þú vilt ekki. „Ég vil heiðarleika og góð samskipti,“ eða: „Er að leita að framtíðarsambandi,“ hljómar mun betur en: „Ef þú ert lygari eða léleg í samskiptum ekki matcha mig,“ eða: „Ég er ekki að leita neinu sem er ekki til framtíðar.“ Hitt opnar á frekari möguleika á spjalli og byrjar með jákvæðni að leiðarljósi, fá eru spennt að senda einhverjum skilaboð ef neikvæðni er það fyrsta sem sést. Í flestum þessum forritum eru oft alls kyns valmöguleikar eða upplýsingar sem þú getur gefið upp. Langar þig í börn eða ekki, hver er kynhneigð þín, hvers konar sambandi ertu að leita að. Þú þarft ekki að svara þessu öllu en gott að fylla inn til að búa til ákveðinn fílter til að þú finnir fólk sem er í sömu pælingum og þú. Myndaval Ókei, myndirnar. Ef eina myndin af þér var tekin á samloku símanum sem þú áttir árið 2005 er tími til að uppfæra. Langflest eigum við, eða þekkjum einhvern sem á nýlegan snjallsíma með nokkuð góðri myndavél. Passaðu að birtan sé góð og horfðu í átt að myndavélinni. Það skemmir svo ekki að brosa! Ef myndin var tekin fyrir löngu síðan gæti verið kominn tími á að uppfæra! Vísir/Getty Ef hin myndin af þér er þegar þú stóðst upp á fjalli og ákvaðst að zoom-a inn á myndina svo hún er svo pixluð, áttar enginn sig á hvort þetta sé raunveruleg mynd eða eitthvað Paint-listaverk þá skaltu finna nýja mynd. Svo er alltaf klassískt að hafa myndir af sér með hóp eða að gera eitthvað sem þér finnst skemmtilegt að gera og lýsir þér og þínum áhugamálum. Finnst þér gaman að klífa fjöll? Settu þá mynd af þér í fjallgöngu. Fátt betra en að vera í góðra vina hópi og spjalla? Já, settu þá mynd af þér með hópnum. Elskarðu að setja saman módel af flugvélum? Já, fáðu einhvern til að taka mynd af þér við þá iðju, eða notaðu gamla góða timer-inn. Það er þó óþarfi að setja mynd af bara hundinum sínum, bílnum sínum eða verkfæratösku. Við erum á þessu forriti til að skoða fólk, ekki ýmsar aðrar eignir fólks. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?Vísir/Getty Hvernig er kynheilbrigðið þitt? Kynfræðingurinn nefnir þetta að sjálfsögðu, og ég er ekki að segja að þú þurfir að setja þetta inn á prófílinn þinn, en þú skalt að sjálfsögðu huga að þessu. Það er gott að spyrja sig ýmissa spurninga áður en riðið er á vaðið í stefnumótaforritum. Vísir/Getty Ef þú stefnir á að stunda kynlíf með fólki þá er gott að pæla í eftirfarandi hlutum: Hvað er langt síðan ég fór í kynsjúkdómapróf? Er ég tilbúin/n/ð að spyrja manneskju sem er möguleiki á kynlífi með, hvort hún sé búin að fara nýlega í test? Og hver var niðurstaðan? Vil ég nota kynsjúkdóma og getnaðarvarnir? Ef já, á ég til smokka? Hvernig get ég komið því skýrt á framfæri? Hvaða sleipiefni finnst mér gott að nota? Hvað finnst mér gott? Hvernig get ég sagt það? Hvernig veit ég hvað öðrum finnst gott? Hvernig set ég mörk og hvernig fæ ég samþykki? Hvernig fólki verð ég skotin/n/ð í? Hvernig sambönd langar mig í? Er opið samband eitthvað sem mig langar að skoða? Hvernig kynlíf langar mig í? Hef ég pælt almennilega í þessu eða er ég bara fylgja því handriti sem ég hef alltaf fylgt? Til að fræðast betur um þetta handrit og hvernig samtöl má eiga tengd kynlífi mæli ég með að leggja á hlustir við þennan þátt: Kynlíf Kynlífið með Indíönu Rós Tengdar fréttir „Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ „Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ spyr krakkinn við eldhúsborðið. Er ekkert heilagt lengur? 5. mars 2024 20:00 Þegar typpið er ekki að typpa eins og það á að typpa Typpi eru einhvernvegin bara út um allt, krotuð á veggi og ekki er hægt að sjá eggaldin án þess að hugsa til þeirra. Fólk sendir typpamyndir, stundum óumbeðnar og óvelkomnar, eins og það sé skyldugt til að deila með heiminum einhverjum boðskap sem mun betrumbæta líf allra. Ekki eru þó allir endilega svona súper-ánægðir með typpið á sér, hvað þá ef eitthvað er ekki alveg eins og það var, eða ætti að vera. 12. mars 2024 20:01 Mest lesið Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Lífið Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Lífið „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Lífið Djammaði með feðgunum Kára og Agli Lífið Sækir um skilnað frá Schneider Bíó og sjónvarp Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Tónlist Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry Lífið Ólafur Darri verður Þór Bíó og sjónvarp Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Lífið Fleiri fréttir Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Sjá meira
Kynlífið með Indíönu Rós kynfræðingi er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Indíana Rós lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Indíönu Rós spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni. Settu nú upplýsingar um þig og segðu satt Ertu 47 ára en stilltir prófílinn þinn á 35? Af hverju? Hvern ertu að reyna plata? Við búum á Íslandi og það þarf engan rannsóknarlögreglumann til að fara inn á Íslendingabók og sjá að enginn með þessu nafni sé fæddur þetta ár. Heiðarleiki er sexy og byrjaðu á því. Settu inn menntunina þína, starf eða áhugamál. Það getur verið mjög erfitt að byrja spjall svo gefðu fólki eitthvað til að grípa í til að tengja við eða spyrja þig út í. Heiðarleikinn skiptir miklu máli þegar nýr prófíll er búinn til á stefnumótaöppum. Vísir/Getty Áfram með heiðarleikann Segðu frá hverju, eða hvaða eiginleikum þú ert að leita að,frekar en hvað þú vilt ekki. „Ég vil heiðarleika og góð samskipti,“ eða: „Er að leita að framtíðarsambandi,“ hljómar mun betur en: „Ef þú ert lygari eða léleg í samskiptum ekki matcha mig,“ eða: „Ég er ekki að leita neinu sem er ekki til framtíðar.“ Hitt opnar á frekari möguleika á spjalli og byrjar með jákvæðni að leiðarljósi, fá eru spennt að senda einhverjum skilaboð ef neikvæðni er það fyrsta sem sést. Í flestum þessum forritum eru oft alls kyns valmöguleikar eða upplýsingar sem þú getur gefið upp. Langar þig í börn eða ekki, hver er kynhneigð þín, hvers konar sambandi ertu að leita að. Þú þarft ekki að svara þessu öllu en gott að fylla inn til að búa til ákveðinn fílter til að þú finnir fólk sem er í sömu pælingum og þú. Myndaval Ókei, myndirnar. Ef eina myndin af þér var tekin á samloku símanum sem þú áttir árið 2005 er tími til að uppfæra. Langflest eigum við, eða þekkjum einhvern sem á nýlegan snjallsíma með nokkuð góðri myndavél. Passaðu að birtan sé góð og horfðu í átt að myndavélinni. Það skemmir svo ekki að brosa! Ef myndin var tekin fyrir löngu síðan gæti verið kominn tími á að uppfæra! Vísir/Getty Ef hin myndin af þér er þegar þú stóðst upp á fjalli og ákvaðst að zoom-a inn á myndina svo hún er svo pixluð, áttar enginn sig á hvort þetta sé raunveruleg mynd eða eitthvað Paint-listaverk þá skaltu finna nýja mynd. Svo er alltaf klassískt að hafa myndir af sér með hóp eða að gera eitthvað sem þér finnst skemmtilegt að gera og lýsir þér og þínum áhugamálum. Finnst þér gaman að klífa fjöll? Settu þá mynd af þér í fjallgöngu. Fátt betra en að vera í góðra vina hópi og spjalla? Já, settu þá mynd af þér með hópnum. Elskarðu að setja saman módel af flugvélum? Já, fáðu einhvern til að taka mynd af þér við þá iðju, eða notaðu gamla góða timer-inn. Það er þó óþarfi að setja mynd af bara hundinum sínum, bílnum sínum eða verkfæratösku. Við erum á þessu forriti til að skoða fólk, ekki ýmsar aðrar eignir fólks. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?Vísir/Getty Hvernig er kynheilbrigðið þitt? Kynfræðingurinn nefnir þetta að sjálfsögðu, og ég er ekki að segja að þú þurfir að setja þetta inn á prófílinn þinn, en þú skalt að sjálfsögðu huga að þessu. Það er gott að spyrja sig ýmissa spurninga áður en riðið er á vaðið í stefnumótaforritum. Vísir/Getty Ef þú stefnir á að stunda kynlíf með fólki þá er gott að pæla í eftirfarandi hlutum: Hvað er langt síðan ég fór í kynsjúkdómapróf? Er ég tilbúin/n/ð að spyrja manneskju sem er möguleiki á kynlífi með, hvort hún sé búin að fara nýlega í test? Og hver var niðurstaðan? Vil ég nota kynsjúkdóma og getnaðarvarnir? Ef já, á ég til smokka? Hvernig get ég komið því skýrt á framfæri? Hvaða sleipiefni finnst mér gott að nota? Hvað finnst mér gott? Hvernig get ég sagt það? Hvernig veit ég hvað öðrum finnst gott? Hvernig set ég mörk og hvernig fæ ég samþykki? Hvernig fólki verð ég skotin/n/ð í? Hvernig sambönd langar mig í? Er opið samband eitthvað sem mig langar að skoða? Hvernig kynlíf langar mig í? Hef ég pælt almennilega í þessu eða er ég bara fylgja því handriti sem ég hef alltaf fylgt? Til að fræðast betur um þetta handrit og hvernig samtöl má eiga tengd kynlífi mæli ég með að leggja á hlustir við þennan þátt:
Kynlífið með Indíönu Rós kynfræðingi er nýr vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Indíana Rós lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Ef þú vilt senda Indíönu Rós spurningu er hægt að finna spurningaform neðst í greininni.
Kynlíf Kynlífið með Indíönu Rós Tengdar fréttir „Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ „Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ spyr krakkinn við eldhúsborðið. Er ekkert heilagt lengur? 5. mars 2024 20:00 Þegar typpið er ekki að typpa eins og það á að typpa Typpi eru einhvernvegin bara út um allt, krotuð á veggi og ekki er hægt að sjá eggaldin án þess að hugsa til þeirra. Fólk sendir typpamyndir, stundum óumbeðnar og óvelkomnar, eins og það sé skyldugt til að deila með heiminum einhverjum boðskap sem mun betrumbæta líf allra. Ekki eru þó allir endilega svona súper-ánægðir með typpið á sér, hvað þá ef eitthvað er ekki alveg eins og það var, eða ætti að vera. 12. mars 2024 20:01 Mest lesið Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Lífið Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Lífið „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Lífið Djammaði með feðgunum Kára og Agli Lífið Sækir um skilnað frá Schneider Bíó og sjónvarp Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Tónlist Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry Lífið Ólafur Darri verður Þór Bíó og sjónvarp Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Lífið Fleiri fréttir Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Sjá meira
„Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ „Mamma, hvað eru endaþarmsmök?“ spyr krakkinn við eldhúsborðið. Er ekkert heilagt lengur? 5. mars 2024 20:00
Þegar typpið er ekki að typpa eins og það á að typpa Typpi eru einhvernvegin bara út um allt, krotuð á veggi og ekki er hægt að sjá eggaldin án þess að hugsa til þeirra. Fólk sendir typpamyndir, stundum óumbeðnar og óvelkomnar, eins og það sé skyldugt til að deila með heiminum einhverjum boðskap sem mun betrumbæta líf allra. Ekki eru þó allir endilega svona súper-ánægðir með typpið á sér, hvað þá ef eitthvað er ekki alveg eins og það var, eða ætti að vera. 12. mars 2024 20:01
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“