Sport

Dag­skráin í dag: Fyrstu sætin í átta liða úr­slitum Meistaradeildarinnar í boði

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Harry Kane og félagar þurfa að snúa taflinu við gegn Lazio í kvöld.
Harry Kane og félagar þurfa að snúa taflinu við gegn Lazio í kvöld. vísir/Getty

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á níu beinar útsendingar þar sem Meistaradeild Evrópu verður í forgrunni á þessum fína þriðjudegi.

Stöð 2 Sport 2

Upphitun fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu hefst klukkan 19:25 áður en við skiptum út á völl klukkan 19:50 þar sem Real Sociedad og PSG eigast við.

Meistaradeildarmörkin verða svo á sínum stað að leik loknum þar sem farið verður yfir allt það helsta úr leikjum kvöldsins.

Stöð 2 eSport

Áskorendamótið í Counter-Strike heldur áfram frá klukkan 19:15 á Stöð 2 eSport.

Stöð 2 Subway-deildin

Haukar og Stjarnan eigast við í Subway-deild kvenna í körfubolta klukkan 19:10.

Vodafone Sport

Bein útending frá Premier Padel - Qatar Major hefst klukkan 12:30 áður en 1899 Hoffenheim tekur á móti Sveindísi Jane Jónsdóttur og stöllum hennar í Wolfsburg í þýsku bikarkeppninni klukkan 17:25.

Klukkan 19:50 er svo komið að viðureign Bayern München og Lazio í Meistaradeild Evrópu þar sem þýska stórveldið er með bakið upp við vegg eftir 1-0 tap í fyrri leiknum.

Við lokum svo deginum á viðureign Bruins og Oilers í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:35 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×