Sport

Dag­skráin í dag: Ís­lands­mótið í keilu, Padel, Lög­mál leiksins og Albert Guð­munds­son

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Albert Guðmundsson og félagar í Genoa mæta toppliði Inter.
Albert Guðmundsson og félagar í Genoa mæta toppliði Inter. Getty Images/Simone Arveda

Það er heldur betur fjölbreytt dagskrá á rásum Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.30 er Íslandsmótið í keilu á dagskrá.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 20.00 er Lögmál leiksins á dagskrá. Þar verður farið yfir það sem hefur drifið á daga NBA-deildarinnar í körfubolta að undanförnu.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 19.35 er leikur Inter og Genoa í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, á dagskrá. Albert Guðmundsson leikur með Genoa.

Stöð 2 ESport

Klukkan 20.00 er GameTíví á dagskrá.

Vodafone Sport

Klukkan 12.30 er Premier Padel á dagskrá en að þessu sinni fer mótið fram í Katar.

Klukkan 00.05 er viðureign New York Rangers og Flórída Panthers í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×