Sport

Dag­skráin í dag: Lengjubikarinn, þýski og ítalski boltinn og fyrsta tíma­taka tíma­bilsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Lewis Hamilton var hraðastur allra í æfingum gærdagsins.
Lewis Hamilton var hraðastur allra í æfingum gærdagsins. Kym Illman/Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á átta beinar útsendingar á þessum fyrsta degi marsmánaðar.

Stöð 2 Sport

FH og Stjarnar eigast við í Lengjubikar kvenna klukkan 18:55 áður en spurningaþátturinn Heiðursstúkan heldur göngu sinni áfram frá klukkan 20:55.

Stöð 2 Sport 2

Bein útsending frá viðureign Lazio og AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, Serie A, hefst klukkan 19:35.

Stöð 2 Sport 4

HSBC Women's World Championship á LPGA-mótaröðinni í golfi heldur áfram frá klukkan 02:30 eftir miðnætti á Stöð 2 Sport 4.

Vodafone Sport

Tímabilið í Formúlu 1 er í þann mund að hefjast og má í raun segja að það hefjist formlega í dag. Þriðja æfing fyrstu keppnishelgarinnar hefst klukkan 12:25 áður en bein útsending frá fyrstu tímatöku tímabilsins hefst klukkan 15:45.

Þá verður Glódís Perla Viggósdóttir í eldlínunni þegar Bayern München sækir Freiburg heim í þ´syku úrvalsdeildinni og að lokum eigast Senators og Coyotes við í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×