Sport

Dag­skráin í dag: Stútfullur íþróttamiðvikudagur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Liverpool tekur á móti Southampton í 16-liða úrslitum FA-bikarsins í kvöld.
Liverpool tekur á móti Southampton í 16-liða úrslitum FA-bikarsins í kvöld. Vísir/Getty

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á hvorki fleiri né færri en átján beinar útsendingar á þessum fína miðvikudegi þar sem allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport

Subway-deild kvenna á heima á Stöð 2 Sport og í kvöld verður boðið upp á alvöru nágrannaslag þegar Njarðvík tekur á móti Keflavík klukkan 19:05. Að leik loknum verður Körfuboltakvöld svo á sínum stað þar sem sérfræðingar Stöðvar 2 Sports fara yfir allt það helsta úr liðinni umferð.

Þá eigast Grindavík og Stjarnan við á hliðarrás Subway-deildarinnar.

Stöð 2 Sport 2

Það verður fótbolti frá morgni til kvölds á Stöð 2 Sport 2 þar sem við hefjum leik á viðureign Bayern München og Feyenoord í UEFA Youth League klukkan 14:50 áður en Real Madrid og Leipzig eigast við í sömu keppni klukkan 16:55.

Klukkan 19:00 er svo komið að því að draga í fjórðungsúrslit elstu og virtustu bikarkeppni heims, FA-bikarsins, áður en Liverpool og Southampton eigast við í 16-liða úrslitum klukkan 19:50.

Að þeim leik loknum verða 16-liða úrslitin svo gerð upp af sérfræðingum í sérstökum uppgjörsþætti.

Stöð 2 Sport 3

Sassuolo og Napoli eigast við í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu klukkan 16:50, en klukkan 19:35 er komið að viðureign Nottingham Forest og Manchester United í 16-liða úrslitum FA-bikarsins.

Stöð 2 Sport 4

Chelsea og Leeds eigast við í 16-liða úrslitum FA-bikarsins klukkan 19:20. Nátthrafnarnir fá einnig eitthvað fyrir sinn snúð á Stöð 2 Sport 4 því klukkan 02:30 eftir miðnætti hefst bein útsending frá HSBC Women's World Championship á LPGA-mótaröðinni í golfi.

Stöð 2 Sport 5

Lengjubikarinn er enn í fullu fjöri og klukkan 19:55 mætast ÍA og Íslandsmeistarar Víkings.

Stöð 2 eSports

Þegar jafn mikið er í gangi og í dag þarf ítalska úrvalsdeildin í knattspyrnu að víkja yfir á Stöð 2 eSport. Topplið Inter tekur á móti Atalanta klukkan 19:35 í beinni útsendingu á rafíþróttarásinni.

Vodafone Sport

Eins og alltaf verður nóg um að vera á Vodafone Sport. Bein útsending frá Premier Padel - Riyadh mótinu í padel hefst klukkan 12:00 áður en Spánn og Frakkland eigast við í Þjóðadeild kvenna klukkan 17:55.

Þá mætast Livingston og Motherwell í skoska boltanum klukkan 20:00 og Rangers taka á mótu Blue Jackets í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×