Innlent

Til­nefningar hefjast 7. mars og kosningar 11. apríl

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Prestar og djáknar mega tilnefna í biskupskjörinu en í kjölfarið er kosið á milli þeirra þriggja sem fengu flestar tilnefningar.
Prestar og djáknar mega tilnefna í biskupskjörinu en í kjölfarið er kosið á milli þeirra þriggja sem fengu flestar tilnefningar. Hallgrímskirkja

Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur tilkynnt forsætisnefnd kirkjuþings ákvörðun sína um að hefja á ný kosningu til embættis biskups Íslands og forsætisnefnd lagt blessun sína yfir fyrirkomulagið.

Samkvæmt tilkynningu á kirkjan.is verður viðmiðunardagur kosningaréttar 15. febrúar 2024, kjörskrá tilbúin og birt 22. febrúar og kærufrestur vegna kjörskrár til hádegis 3. mars.

Tilnefningar hefjast klukkan 12 fimmtudaginn 7. mars og standa til klukkan 12 þriðjudaginn 12. mars.

Þá hefjast kosningar klukkan 12 fimtudaginn 11. apríl og standa til klukkan 12 þriðjudaginn 16. apríl.

Endurtaka þarf tilnefningar til biskupskjörs eftir að tæknilegir örðugleikar komu upp við talningu tilnefninga í fyrra skiptið. 

Sjö hafa lýst áhuga á biskupsembættinu; Bjarni Karlsson, Elínborg Sturludóttir, Guðrún Karls Helgudóttir, Guðmundur Karl Brynjarsson, Helga Soffía Konráðsdóttir, Kristján Björnsson og Ninna Sif Svavarsdóttir.

Þá hefur Svavar Alfreð Jónsson einnig verið nefndur en gefið óskýr svör um hvort hann taki við tilnefningum.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×