Sport

Dag­skráin í dag: Hverjir verða and­stæðingar Ís­lands?

Smári Jökull Jónsson skrifar
Åge Hareide landsliðsþjálfari Íslands og Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarmaður hans.
Åge Hareide landsliðsþjálfari Íslands og Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarmaður hans. Vísir/Hulda Margrét

Dregið verður í Þjóðadeildinni í dag og fá Íslendingar þá að vita hverjir verða andstæðingar þeirra í riðlakeppninni. Þá verður sýnt beint frá Subway-deild karla í körfuknattleik.

Stöð 2 Sport

Drátturinn í Þjóðadeildina hefst klukkan 17:00 en þar verður Ísland í B-riðli í öðrum styrkleikaflokki. Ísland getur ekki dregist á móti Finnum, Úkraínu eða Noregi en í fyrsta styrkleikaflokki eru meðal annars Englendingar sem gætu orðið andstæðingar Åge Hareide og lærisveina hans.

Klukkan 19:10 fer Skiptiborðið svo í loftið en þar verður farið yfir gang mála í öllum fimm leikjum kvöldsins í Subway-deild karla. Tilþrifin verða síðan í beinni útsendingu klukkan 21:10 eða strax þegar leikjum kvöldsins er lokið.

Stöð 2 Sport 5

Leikur Þórs frá Þorlákshöfn og Grindavíkur verður í beinni útsendingu frá klukkan 19:05. Grindvíkingar hafa verið á miklu flugi undanfarið og geta jafnað Þórsara að stigum með sigri.

Stöð 2 Esport

Ljósleiðaradeildin í CS:GO verður í beinni útsendingu frá klukkan 19:15.

Stöð 2 Subway deildin 1

Leikur Keflavíkur og Hattar í Subway-deildinni verður sýndur beint frá klukkan 19:10.

Stöð 2 Subway deildin 2

Topplið Vals tekur á móti Haukum í Subway-deildinni og hefst útsending klukkan 19:10.

Vodafone Sport

Premier League í pílukasti er í fullum gangi og hefst útsending klukkan 18:55. Keppni kvöldsins fer fram í Berlín og þar mætast meðal annars Michael Smith og Gerwyn Price og Luke Littler og Rob Cross.

Klukkan 00:05 í nótt verður síðan sýnt beint frá leik Boston Bruins og Vancouver Canucks í NHL-deildinni í íshokký.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×