Sport

Dag­skráin í dag: Afríkukeppnin, þýski og ítalski boltinn, NHL, NBA og golf

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Bayern München þarf á sigri að halda í titilbaráttunni.
Bayern München þarf á sigri að halda í titilbaráttunni. Sebastian Widmann/Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á tíu beinar útsendingar á þessum fyrsta laugardegi febrúarmánaðar þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport 2

Ítalski boltinn á heima á Stöð 2 Sport 2 og í dag eru þrír leikir á dagskrá. Albert Guðmundsson og félagar í Genoa heimsækja Empoli klukkan 13:50 áður en Frosinone tekur á móti AC Milan klukkan 16:50. Klukkan 19:35 er svo komið að viðureign Bologna og Sassuolo.

Þá er einnig einn leikur á dagskrá í NBA-deildinni í körfubolta þegar Philadelphia 76ers tekur á móti Brooklyn Nets klukkan 23:00.

Stöð 2 Sport 4

Women's Amateur Asia-Pacific Championship mótið í golfi heldur áfram frá klukkan 04:00 eftir miðnætti.

Vodafone Sport

Að lokum verður nóg um að vera á Vodafone Sport þar sem við hefjum leik á viðureign Leipzig og Köln í þýska kvennaboltanum klukkan 10:55.

Við færum okkur svo yfir í þýska karlaboltann þar sem Þýskalandsmeistarar Bayern München taka á móti Borussia Mönchengladbach klukkan 14:20.

Þá verða einnig tveir leikir á dagskrá í Afríkukeppninni í fótbolta þar sem Malí og Fílabeinsströndin eigast við klukkan 16:50 annars vegar og hins vegar Grænhöfðaeyjar og Suður-Afríka klukkan 19:50.

Við endum dagskrána svo á All-Star leiknum í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 22:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×