Atvinnulíf

Styrkleikar frum­kvöðla sem eru fer­tugir og eldri

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Aldur á alls ekki að vera fyrirstaða fyrir því að fólk dembi sér í nýsköpun og láti frumkvöðladrauma sína verða að veruleika. Því samkvæmt niðurstöðum Harvard vinnur aldurinn jafnvel með þér og eykur líkurnar á því að fólki tekst enn betur upp en ella.
Aldur á alls ekki að vera fyrirstaða fyrir því að fólk dembi sér í nýsköpun og láti frumkvöðladrauma sína verða að veruleika. Því samkvæmt niðurstöðum Harvard vinnur aldurinn jafnvel með þér og eykur líkurnar á því að fólki tekst enn betur upp en ella. Vísir/Getty

Við tengjum flest frumkvöðla við frekar ungt fólk. Ekki bara á Íslandi, heldur eru árangurssögurnar erlendis frá líka oft tengdar mjög ungum snillingum.

Bill Gates var 19 ára þegar hann stofnaði Microsoft og Mark Zuckerberg á sama aldri þegar Facebook var stofnað.

Niðurstöður rannsóknar sem gerð var í Harvard sýna hins vegar að fólk sem er fertugt og eldra, hafa mjög margt til brunns að bera sem gerir fólk að frábærum frumkvöðlum.

Reyndar eru styrkleikarnir svo margir að í niðurstöðunum má líka sjá að til dæmis fólk um sextugt er þrisvar sinnum líklegri til að ná árangri í frumkvöðlastarfssemi sinni í samanburði við fólk um þrítugt.

Sem þýðir að aldur er svo sannarlega ekki fyrirstaðan fyrir því að fólk ætti að láta drauma sína rætast og láta slag standa með sínar hugmyndir.

En hvað er það sem gerir 40+ fólk að frábærum frumkvöðlum?

Jú, hér eru fimm atriði nefnd sérstaklega.

1. Reynslan

Það segir sig sjálft að því eldri sem við verðum, því meiri reynslu öðlumst við flest. Ekki síst í starfi. Þar sem þekkingin vex ekki aðeins tengt því sem við gerum, heldur líka hver við erum og hvað við getum.

2. Þekkja markaðinn

Fólk sem fer í frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun um til dæmis miðjan aldur, veit oft mjög mikið um þann markað sem það ætlar sér að leggja áherslu á og ná til: markaðinn, markhópinn. Þessi þekking og reynsla, gefur fólki ákveðið forskot þegar það kemur að því að skapa vöru eða þjónustu sem eftirspurn verður eftir.

3. Tengslanetið

Fólk sem er fertugt og eldra hefur haft áratugi til að byggja upp tengslanetið sitt. Sem síðan kemur að góðum notum þegar farið er af stað í nýsköpun.

4. Sjálfsöryggi

Hjá mörgum eykst sjálfsöryggið okkar með aldrinum en auðvitað getur þetta líka verið persónubundið. Samkvæmt rannsóknum eru þó meiri líkur á því en minni að við séum öruggari með okkur sjálf eftir því sem við eldumst.

5. Seiglan

Það eru þó nokkrar líkur á því að frumkvöðlar sem fara af stað með nýsköpunarfyrirtæki eftir fertugt, séu búnir að ganga með hugmyndina í maganaum í nokkurn tíma. Jafnvel nokkur ár. Ástríða einkennir frumkvöðla á öllum aldri en þegar kemur að frumkvöðlum sem eru yfir fertugt, eru líkurnar á að þrautseigjan og seiglan sem felst í því að fylgja ástríðunni enn betur eftir, nýtist sem mikilvægur styrkleiki.


Tengdar fréttir

Að líka illa við yfirmanninn sinn

Yfirmenn hafa mikið um það að segja hver starfsánægja fólks er í vinnunni. Á hvorn veginn sem það síðan virkar: Upp eða niður á við.

Óstundvísi: Alltaf sama fólkið og stuðar alla í kring

Það er einn hundleiðinlegur vani sem því miður sumir hafa: Þeir eru alltaf of seinir. Mæta aðeins of seint til vinnu. Eru aðeins lengur í hádegismat, mætir síðast á alla fundi og svo framvegis.

Góð ráð: Aftur á vinnumarkaðinn eftir langt hlé

Það getur verið kvíðvænleg tilhugsun að vera að fara aftur á vinnumarkaðinn eftir langt hlé. En svo sem ekkert óalgengt ef stutt er á milli barneigna og/eða þær aðstæður hafa komið upp hjá fjölskyldunni að par ákveður að annað foreldrið sé heimavinnandi um tíma.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×