Lífið

Sindri Snær og Alexía gáfu syninum nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Alexía og Sindri eignuðust frumburð sinn í lok síðasta árs.
Alexía og Sindri eignuðust frumburð sinn í lok síðasta árs. Skjáskot

Sindri Snær Jensson athafnamaður og kærasta hans Alexía Mist Baldursdóttir gáfu syni sínum nafn á dögunum. Drengurinn fékk nafnið Júlíus Skuggi.

Parið greindi frá gleðifréttunum í færslu á Instagram. Drengurinn er fyrsta barn þeirra saman og kom hann í heiminn 14. nóvember síðastliðinn.

Parið greindi frá komu sonarins með hjartnæmri færslu á Instagram.

„Dagurinn sem heimurinn okkar og hjörtu stækkuðu þúsundfalt. Eftir 24 klukkustunda baráttu kom fullkominn drengur í heiminn með keisaraskurði. 15 merkur og 51 cm. Fyrsta vikan okkar saman hefur verið draumi líkust,“ skrifaði parið við færsluna.

Sindri Snær Jensson er einn eigenda fataverslunarinnar Húrra Reykjavík en hann og Jón Davíð Davíðsson stofnuðu verslunina árið 2014. Jafntfram eru þeir eigendur veitingastaðanna, Flatey pizza og Yuzu, auk næturklúbbsins Auto.


Tengdar fréttir

Sindri Snær og Alexía glæsileg í pítsuveislu

Mikil stemmning var í sex ára afmæli veitingastaðarins Flatey pizza á dögunum. Margt var um manninn þar sem vinir, vandamenn og velunnurum var boðið til samfagnaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×