Innlent

„Við erum bara að vinna vinnuna“

Árni Sæberg skrifar
Sigríður Margrét Oddsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Sigríður Margrét Oddsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Einar

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að fundað sé stíft í Karphúsinu og sú staða verði áfram næstu daga. Breiðfylking stéttarfélaga og SA nálgist verkefnið af mikilli einlægni.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Vísi milli funda að lítið hafi breyst í viðræðum samtakanna við breiðfylkingu innan ASÍ, með samtals um hundrað og tíu þúsund félagsmenn innanborðs frá yfir 40 félögum, frá því í gær. „Við erum bara að vinna vinnuna.“

Það sem af er degi hafi viðræður helst snúist um launalið kjarasamninga sem nú eru í vinnslu, en greint hefur verið frá því að stefnt sé að fjögurra ára samningi. Hún segist ekkert vilja gefa upp um tölur eða kröfur í þeim efnum að svo stöddu.

„Það skiptir svo miklu máli núna að það eru allir í þessu af einlægni, við erum með sameiginleg markmið og við erum að huga að langtímakjarasamningi. Því fylgir auðvitað að það er í mörg horn að líta og það er einlægur samstarfsvilji.“

Mikilvægt að allir axli ábyrgð

Verkalýðshreyfingin hefur lagt mikla áherslu á það að stjórnvöld komi að samningaborðinu. Sigríður Margrét segir að SA hafi ekki lagt áherslu á það að stjórnvöld komi með beinum hætti að samningaviðræðum.

„Við höfum lagt áherslu á það að þegar það er verið að vinna að þessu stóra verkefni, sem er efnahagslegur stöðugleiki, þá þurfi allir að axla ábyrgð.“


Tengdar fréttir

Lagt upp með fjögurra ára samning

Breiðfylking stéttarfélaga og Samtök atvinnulífsins hafa til skoðunar fjögurra ára kjarasamning. Launatölur hafa verið lagðar á borðið en formaður VR segir launaliðinn algjört aukaatriði þegar kemur að mögulegum ávinningi verkafólks. Stjórnvöld þurfi að stíga skrefið inn í viðræðurnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×