Kvensjúkdómalæknir fundinn sekur um þjóðarmorð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. desember 2023 07:47 Um 800 þúsund einstaklingar voru myrtir á 100 dögum í Rúanda árið 1994, flestir af Tútsí-ættbálknum. Getty/Ben Birchall Sosthene Munyemana, 68 ára fyrrverandi kvensjúkdómalæknir, hefur verið dæmdur í 24 ára fangelsi í Frakklandi fyrir aðkomu sína að þjóðarmorði Hútúa á Tútsí-mönnum í Rúanda árið 1994.
Munyemana var fundinn sekur um þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu en hann var meðal annars sagður hafa átt aðkomu að drögum stuðningsyfirlýsingar við stjórnvöld, þar sem hvatt var til þjóðamorðs. Þá var hann sagður hafa tekið þátt í því að fanga fólk í Butare, þar sem því var haldið þar til það var myrt. Munyemana hyggst áfrýja dómnum. Hann hefur haldið fram sakleysi sínu og segist hafa verið hófsamur Hútúi og hafa freistað þess að bjarga Tútsí-mönnum með því að bjóða þeim skjól í opinberum byggingum í Butare, þar sem hann bjó. Munyemana var náin samstarfsmaður Jean Kambanda, sem fór fyrir bráðabirgðastjórninni sem var skipuð eftir að flugvél þáverandi forseta, Juvénal Habyarimana, var skotin niður. Kæra var lögð fram gegn Munyemana í Bordeaux árið 1995 en hann var ákærður árið 2011. Um er að ræða sjöttu réttarhöldin í Frakklandi vegna þjóðarmorðsins í Rúanda en margir sem voru bendlaðir við glæpinn flúðu þangað. Frakkar hafa verið sakaðir um að hafa verið tregir til að framselja umrædda einstaklinga eða draga þá fyrir dóm. Um 800 þúsund einstaklingar voru myrtir á 100 dögum í Rúanda árið 1994, flestir af Tútsí-ættbálknum.
Frakkland Rúanda Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira