Erlent

Sam­tök Koch-bræðra lýsa yfir stuðningi við Haley

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Jafnvel þótt Haley eigi litla möguleika á því að sigra Trump verður hún að teljast álitlegur frambjóðandi árið 2028.
Jafnvel þótt Haley eigi litla möguleika á því að sigra Trump verður hún að teljast álitlegur frambjóðandi árið 2028. Getty/Joe Raedle

Americans for Prosperity Action, stjórnmálasamtök milljarðamæringana Charles og David Koch, hafa lýst yfir stuðningi við Nikki Haley í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári.

Stuðningur við Haley hefur vaxið jafnt og þétt frá því að kosningabaráttan hófst og hún þykir hafa staðið sig vel í kappræðum frambjóðendanna. Hún er þó enn langt frá því að eygja raunhæfan möguleika á því að sigra Donald Trump, fyrrverandi forseta, sem nýtur lang mests stuðnings samkvæmt öllum könnunum.

Yfirlýsing Americans for Prosperity Action, sem gefin var út í gær, þykir líkleg til að þoka Haley nær því að ná Ron DeSantis, ríkisstjóra Flórída, og mögulega velta honum úr sessi sem helsta keppinaut Trump.

Haley, sem er fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og var sendifulltrúi Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar í stjórnartíð Trump, hefur sagt tíma Trump liðinn og tímabært að horfa til framtíðar. Americans for Prosperity Action deila þeirri afstöðu en samtökin hafa barist ötullega gegn Trump síðustu misseri.

Það vekur athygli að Americans for Prosperity Action hafa hins vegar hingað til haft allt aðra afstöðu en Haley í utanríkismálum og hafa til að mynda ekki viljað blanda Bandaríkjunum í innrásina í Úkraínu.

Samtökin segja hins vegar að Haley sé laus við þann bagga sem Trump lagði á herðar frambjóðenda Repúblikanaflokksins í síðustu þingkosningum og að Haley sem forsetaefni flokksins myndi auka stuðning við aðra frambjóðendur og laða til sín atkvæði hófsamra og óháðra kjósenda.

Í minnisblaði sem birt var í gær segir að öfgar í báðar áttir séu að sundra Bandaríkjunum og Haley sé manneskjan til að forða landinu frá bjargbrúninni.

Ítarlega umfjöllun um málið má finna hjá New York Times.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×