Handbolti

Viggó frá­bær þegar Leipzig náði í stig

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Viggó var magnaður í kvöld.
Viggó var magnaður í kvöld. Leipzig

Viggó Kristjánsson var magnaður í jafntefli Leipzig og Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Viggó hefur verið ótrúlegur það sem af er tímabili og það virðist engan endi ætla að taka. Hann bjargaði stigi fyrir sína menn með því að jafna leikinn þegar 14 sekúndur lifðu leiks, lokatölur 31-31.

Viggó skoraði alls 7 mörk í kvöld og gaf eina stoðsendingu. Andri Már Rúnarsson skoraði 2 mörk og gaf einnig eina stoðsendingu í liði gestanna. Faðir hans, Rúnar Sigtryggsson, er þjálfari Leipzig. 

Arnór Þór Gunnarsson er aðstoðarþjálfari Bergischer.

Leipzig er í 9. sæti með 13 stig að loknum 14 leikjum. Bergischer er í 13. sæti með 9 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×