Lífið

Féll kylli­flatur fyrir Euro­vision eftir ára­tuga gagn­rýni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Felix Bergsson ræðir meðal annars um ævintýraríka reynslu sína af Eurovision í nýjasta þætti Einkalífsins.
Felix Bergsson ræðir meðal annars um ævintýraríka reynslu sína af Eurovision í nýjasta þætti Einkalífsins. Vísir/Vilhelm

„Baldur gerir stólpagrín af mér því að þegar við byrjuðum saman þá var það hann sem var Eurovision aðdáandinn og ég var það bara alls ekki,“ segir Felix Bergsson í nýjasta þætti af Einkalífinu.

„Ég var hrokafulli leikarinn sem sat í partýinu og gerði grín af öllum pakkanum. Hann þurfti að sussa á mig í partýjum og biðja mig að vera ekki að tala yfir sjónvarpið.“

Hér má sjá viðtalið við Felix í heild sinni:

Lífið átti heldur betur eftir að taka stóra U-beygju hjá Felix hvað þetta varðar en í dag er hann einn helsti Eurovision sérfræðingur landsins.

Ævinlega þakklátur að fá þetta tækifæri

Árið 2010 fór Felix með hlutverk í söngleik sem fjallar um líf Buddy Holly.

„Einn af þeim sem lék í því var Sigurjón Brink eða Sjonni Brink. Við áttum senur saman og urðum voða góðir vinir. Það var rosalega gaman að vinna með honum, ofboðslega talenteraður og skemmtilegur strákur. Ég vissi að hann var að bardúsa í músík á fullu, hafði náttúrulega heyrt af því í gegnum tíðina, og á meðan við vorum í þessum söngleik var hann á leið í Söngvakeppnina.

Síðan fær hann heilablóðfall, eins og kannski frægt er orðið, og deyr frá konunni sinni og kornungum börnum. Þetta var hræðilegt, söngleikurinn lognaðist náttúrulega útaf og þetta var hræðilegur tími. En við þjöppuðum okkur mikið saman, hópurinn sem hafði verið í kringum Sjonna og í kringum þau. Strákarnir, bestu vinur Sjonna úr músíkinni, verða Vinir Sjonna, fara í Söngvakeppnina og vinna.“

Þórunn Erna Clausen, ekkja Sjonna, hringir í kjölfarið í Felix og spyr hvort hann vilji verða fjölmiðlafulltrúi hópsins, þar sem hún vildi halda hópnum nálægt sér.

„Ég verð Þórunni ævinlega þakklátur að fá þetta tækifæri, því þarna fer ég í fyrsta skipti á Eurovision með Vinum Sjonna.“

Erfitt en heilandi ferli

Felix segir þetta sannarlega hafa verið skrýtna stöðu að vera þarna úti eftir mikið áfall.

„Fyrir alla var þetta skrýtið, fyrir þau náttúrulega svakalega erfitt og fyrir mig að selja þessa sögu, því þessi saga er náttúrulega það sem allir vildu spyrja um og tala um. En þetta var samt svo heilandi ferli.“

Það sem gerist svo er að Felix Bergsson fellur kylliflatur fyrir Eurovison.

„Ég bara trúði ekki mínum eigin augum og eyrum. Ég allt í einu bara átta mig á því að ef maður hefur áhuga á sjónvarpsþáttagerð, ef maður hefur áhuga á tónlist, ef maður hefur áhuga á sviðsetningu og ef maður hefur áhuga á að vera með frábærum listamönnum alls staðar að úr heiminum að vinna að stærsta sjónvarpsþætti í heimi þá hefur maður áhuga á Eurovision.“

Ótal ævintýri, mörg dramatísk en flest skemmtileg

Eftir þetta fór Felix að vinna í því að fá að vera meira tengdur Eurovision.

„Ég tók við þáttunum Alla leið um þetta leyti hjá Rúv, svo árið 2013 var ég gerður að kynni og eftir það hef ég verið að vinna í þessu. Ég tók við af Jónatani Garðarssyni árið 2017 sem leiðtogi eða fararstjóri íslenska hópsins og hef notið þess algjörlega í botn. 

Þau hafa verið ótrúlega mörg ævintýrin, mörg hver ansi dramatísk en flest mjög skemmtileg og ég er búinn að kynnast svo ótrúlega yndislegu listafólki á öllum aldri, foreldrum þeirra og fjölskyldum. Þetta er búið að vera algjör lífsgjöf, rosalega skemmtilegt verkefni og ég elska það af öllu mínu hjarta.“

Ógleymanlegt og ruglað partý hjá rússneskri poppstjörnu

Það eru ófáar ævintýrasögur sem Felix lumar á í tengslum við Eurovision. Nefnir hann meðal annars sína fyrstu ferð sem leiðtogi hópsins árið 2017 þegar Svala Björgvins fór til Kænugarðs, eða Kiev, í Úkraínu. Farangurinn skilaði sér ekki á leiðarenda en blessunarlega hafði Svala tekið búninginn með sér í handfarangri.

„Þannig að hún gat farið á fyrstu æfinguna í búning. En við hin vorum orðin ansi sveitt og dálítið sjúskuð þegar farangurinn kom fjórum eða fimm dögum seinna. Og baráttan að reyna að fá farangurinn sinn í gegnum kerfið í Úkraínu, það var alveg með ólíkindum.“

Felix fór aftur á Eurovision með vinkonu sinni Þórunni Ernu Clausen árið 2018 ásamt keppandanum Ara Ólafssyni en Þórunn samdi lagið sem Ari flutti.

„Okkur er þá boðið í ógleymanlegt partý sem rússnesk poppstjarna er að halda, Philip Kirkorov heitir sá og er ofboðsleg stjarna í Rússlandi. Þetta er í raun nákvæmlega sama partýið og er fyrirmynd að partýinu sem er í Eurovision myndinni The Story of Fire Saga.

Það voru allir farnir að syngja, allir komnir út á gólf að taka lagið, allir að fá sínar fimm mínútur af frægð. Og bara ég hef aldrei upplifað annað eins. Þannig að þegar fólkið sér partýið í Eurovision myndinni þá voru ég, Ari og Þórunn þar.“

Í spilaranum hér að neðan má sjá partýið úr Eurovision myndinni sem svipar mikið til partýsins sem Felix fór í:

„Þetta fólk sem hélt veisluna er náttúrulega allt orðið persona non grata og er ekki lengur með okkur í Eurovision. Philip er til dæmis stuðningsmaður stríðsins gegn Úkraínu og svoleiðis þannig hann er ekki mjög vinsæll inni í Eurovision kreðsum lengur. En svona var þetta þá. Alveg peningarnir og ruglið sko, ruglið. Alveg ævintýralegt. 

Það gerist alltaf eitthvað í hverri einustu ferð þannig að maður er alltaf vakinn, sofinn og tilbúinn. Ekkert kemur á óvart lengur, sérstaklega ekki eftir Covid ævintýrið með Daða Frey í Rotterdam,“ 

segir Felix og á við þegar að atriði Daða og Gagnamagnsins gat ekki stigið á svið á keppninni sjálfri vegna Covid smits, einangrunar og sóttkvís.


Tengdar fréttir

Lærir spænsku eftir fréttirnar af ó­læknandi krabba­meini móður sinnar

Kamilla Einars­dóttir, rit­höfundur og bóka­vörður, segir að veikindi móður sinnar hafi sett lífið í sam­hengi. Hún segist ekki missa svefn yfir skoðunum annarra á ástar­lífi sínu og segist blása á þá gagn­rýni að húmor sé flótti undan veru­leika lífsins, hann sé frá­bær til þess að takast á við erfið­leika.

Tekst á við bróður­missinn með tón­listina og hlaupin að vopni

Óskar Logi Ágústs­son hefur verið for­sprakki hljóm­sveitarinnar Vinta­ge Caravan í sau­tján ár, allt frá því að hann stofnaði hljóm­sveitina í grunn­skóla á Álfta­nesi. Óskar missti eldri bróður sinn árið 2018 og segist hafa sín ráð til að takast á við sorgina.

„Slétt sama hvað fólki finnst um mig“

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson er með þekktari lögmönnum landsins og hefur meira að segja fengið viðurnefnið stjörnulögmaðurinn. Hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu en þáttinn má sjá í heild sinni hér í pistlinum.

Edda Lovísa hætt á On­lyFans eftir hótanir og eigið marka­leysi

Edda Lovísa Björgvinsdóttir er hætt að framleiða klám á OnlyFans. Hún segist ekki geta farið lengur ein niðrí bæ og þá hefur hún þurft að flytja eftir að áskrifandi á síðunni komst að því hvar hún átti heima. Hún segist hafa verið hætt að virða eigin mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×