Innlent

„Við getum ekki neitað börnum um að kaupa lyf“

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélagsins segir mikilvæg að fræða fólk betur um lyf.
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélagsins segir mikilvæg að fræða fólk betur um lyf. Aðsend/Vilhelm

Formaður Lyfjafræðingafélagsins kallar eftir því að reglur um lyfjakaup verði skýrðar þar sem lyfjafræðingar geti í raun ekki neitað börnum um að kaupa lyf eins og reglurnar eru núna.

Sagt var frá því í þættinum Hliðarlínunni sem sýndur var á Stöð 2 og Stöð 2 Sport í vikunni að dæmi séu um að börn sem þjást af verkjum taki verkjalyf líkt og íbúfen og paratabs til að komast á íþróttaæfingar og til að keppa.

Ekki er kveðið á um nein aldurstakmörk við kaup á lyfjum hvorki í lyfjalögum né reglugerðum. Fréttastofa sendi þrettán ára strák í tvö apótek til að kaupa verkjalyf og reyndist það lítið mál fyrir hann.

Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélagsins segir lyfjafræðinga geta verið í erfiðri stöðu þegar börn koma í apótek til að kaupa sér lyf.

„Það er klárt mál að það þurfi að skýra reglurnar af því það er náttúrulega svolítið fáránlegt að vera með lyf sem stendur á geymist þar sem börn ná ekki til en svo geta börn bara farið í apótek og keypt þau af því það eru engar reglur fyrir því hvaða aldur má selja þetta niður í.“ 

Hægt er að sjá brot úr þættinum Hliðarlínan í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn í heild er á Stöð 2+ en hann er sýndur bæði á Stöð 2 og Stöð 2 Sport.

Hún segist ekki hafa upplifað það sem algengt vandamál að börn séu að kaupa lyf en engu að síður þurfi að skýra reglurnar.

„Við getum ekki neitað börnum um að kaupa lyf ef það eru ekki reglur fyrir því að við megum neita þeim.“ 

Félagsmenn hafi rætt málið saman og séu sammála um að kalla eftir skýrari reglum þegar kemur að börnum og lyfjakaupum. 

„Það var til dæmis einn lyfjafræðingur sem minntist á að ef að það kemur barn í apótek til hennar þá hefur hún reynt að hringja í foreldri en það er ekkert í lögum sem sem segir að hún eigi að gera það. Við verðum svolítið að hugsa við megum ekki setja ábyrgðina á börnin sem vita ekki betur. Við verðum svolítið að setja ábyrgðina á foreldrana.“

Mikilvægt að hlusta vel á líkamann

Sigurbjörg segir mikilvægt að fræða fólk betur um lyf. Hún hafi rekið sig á að fræðslan sem fólk fái komi oft í gengum samfélagsmiðla eða jafnaldra. Mögulega þurfi heilbrigðisstarfsfólk að stíga oftar fram og fræða betur. 

„Það er kannski svolítið skrýtið að samfélagið setji þá pressu á ungt fólk að það verði að nota verkjalyf til þess að geta haldið æfingum áfram og þá finnst mér kannski vanta svolítið fræðslu. Af því að lyfjafræðingar í apótekum við vitum alveg að það er ekkert lyf sem er fullkomið og þegar þú ert að nota lyf við verkjum þá ertu náttúrulega að slökkva á þessum boðum sem líkaminn er að senda.“

Mikilvægt sé að hlusta á það sem líkmanninn er að reyna að segja með verkjunum. 

„Líkaminn er að segja þér eitthvað og hvað er hann að segja þér. Hann er að segja þér að taka því rólega. Hann er að segja þér að breyta aðeins til eða að reyna að komast að rót vandans. Af hverju ertu með þessa verki. Hann er að segja þér eitthvað og þegar þú tekur verkjalyf þá ertu að slökkva á þessum boðum.“ 


Tengdar fréttir

„Ég brýt á mér átta fingur af tíu“

Kona sem tók verkjalyf daglega þegar hún var barn til að geta stundað fimleika fékk magasár af verkjalyfjanotkun. Ekkert kemur í veg fyrir að börn geti sjálf keypt sér verkjalyf í apótekum. 

Himinn og haf á milli hegðunar íslenskra foreldra og sænskra

Íslenskur þjálfari segir tvennt ólíkt að fylgjast með foreldrahegðun á fótboltamótum á Íslandi og í Svíþjóð. Sænsku foreldrarnir hegði sér töluvert betur á hliðarlínunni en þar í landi séu upplýsingaskilti við hvern einasta völl þar sem minnt er á hvað sé æskileg hegðun þegar börn keppa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×