Erlent

Bein útsending: Jordan gerir atrennu að embætti þingforseta

Samúel Karl Ólason skrifar
Jim Jordan, reynir í dag að tryggja sér embætti þingforseta.
Jim Jordan, reynir í dag að tryggja sér embætti þingforseta. AP/J. Scott Applewhite

Þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiða í dag atkvæði um hvort Jim Jorda, Repúblikani, verði næsti forseti fulltrúadeildarinnar. Útlit er fyrir að Jordan hafi ekki tekist að tryggja sér nægilega mörg atkvæði úr eigin þingflokki.

Eins og þekkt er var Kevin McCarthy vikið úr embætti þingforseta í byrjun mánaðarins þegar átta Repúblikanar og allir þingmenn Demókrataflokksins greiddu atkvæði með vantrauststillögu gegn honum. Þingmennirnir átta voru þeir sömu og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins.

Eftir deilur innan flokksins var Steve Scalise tilnefndur til embættisins en hann dró framboð sitt til baka degi síðar, þegar ljóst var að hann naut ekki nægilegs stuðnings til að tryggja sér embættið.

Jim Jordan, þingmaður frá Ohio og ötull stuðningsmaður Donalds Trump, var svo tilnefndur eftir atkvæðagreiðslu innan þingflokks Repúblikanaflokksins. Hann fékk ekki atkvæði um fimmtíu þingmanna en í kjölfar þess fóru bandamenn hans í umfangsmikla herferð til að bæta stöðuna.

Meðal annars fékk Jordan hann Sean Hannity frá Fox News til að hjálpa sér með því að senda fyrirspurn á alla sem greiddu ekki atkvæði með Jordan og spyrja þá af hverju þeir gerðu það ekki. Stuðningsmenn Jordans gagnrýndu einnig þessi þingmenn harðlega á samfélagsmiðlum og í viðtölum.

Þá var símanúmerum þingmanna sem vildu ekki veita Jordan atkvæði sitt deilt á samfélagsmiðlum og fólk hvatt til að þrýsta á þá.

Í frétt New York Times segir að þetta minni á aðferðir Jordans og annarra bandamanna hans, sem þeir hafa beitt á undanförnum árum til að draga Repúblikanaflokkinn lengra til hægri og sömuleiðis á aðferðir Trumps.

Þessar aðferðir hafi sömuleiðis leitt til núverandi krísu Repúblikanaflokksins, þar sem fámennur hópur fjarhægri Repúblikana hafi tekist að velta þingforsetanum úr sessi og valdið óreiðu í þingflokknum.

Óljóst hvort Jordan hafi nægan stuðning

Einungis fimm af 221 þingmanni Repúblikanaflokksins þurfa að neita að gefa Jordan atkvæði sitt til að hann nái ekki að tryggja sér embættið. Sé mið tekið af greiningum fjölmiðla vestanhafs er útlit fyrir að tíu til tuttugu þingmenn Repúblikanaflokksins ætli ekki að veita Jordan atkvæði.

Mjög litlar líkur eru á því að nokkur Demókrati muni veita Jordan atkvæði.

Í frétt Punchbowl News segir að meðal þeirra séu þingmenn sem styðji enn McCarthy og séu reiðir yfir því hvernig Jordan og hans bandamenn komu fram við Scalise. Einnig eru þingmenn sem eru ósáttir við viðhorf Jordans til kosninganna 2020, en hann hefur stutt Trump dyggilega í þeirri lygi að hann hafi tapað kosningunum vegna umfangsmikils svindls.

Jordan tók einnig virkan þátt í tilraunum Trumps til að snúa úrslitum forsetakosninganna og hefur dreift samsæriskenningum og lygum um kosningarnar.

Þingkonan Mariannette Miller-Meeks las upp lista á þingflokksfundi Repúblikana í gær yfir þingmenn sem höfðu gagnrýnt hana og aðra Repúblikana og kvartaði hún yfir þrýstiherferð Jordans og bandamanna hans.

Fréttakona CNN hefur tekið saman lista yfir þingmenn Repúblikanaflokksins sem hafa lýst því yfir að þeir ætli ekki að veita Jordan atkvæði og yfir þá sem hafa ekki ákveðið sig eða sagt frá afstöðu.

Greiða mögulega oft atkvæði

Hvort þingmennirnir standi við stóru orðin verður að koma í ljós. Jordan hefur gefið til kynna að hann ætli að tryggja að nokkrar atkvæðagreiðslur fari fram í dag. Afstaða þingmanna gæti breyst í ljósi þess hvernig fyrsta atkvæðagreiðslan fer, ef við gefum okkur að Jordan nái ekki kjöri í henni.

Jordan og bandamenn hans vilja láta reyna á það að þingmenn sem styðji hann ekki óttist grasrót Repúblikanaflokksins og að þeir verði settir til hliðar í næsta forvali.

Atkvæði verða greidd í stafrófsröð og þrír af þeim þingmönnum sem segjast ætla að segja nei eru mjög ofarlega í röðinni. Það gæti einnig haft áhrif á aðra þingmenn, fái Jordan þrjú nei frá allra fyrstu þingmönnunum.

Þingfundurinn á að hefjast klukkan fjögur í dag og verður hægt að fylgjast með honum í spilaranum hér að neðan. Ekki er víst að atkvæðagreiðslan hefjist um leið og þingfundurinn.


Tengdar fréttir

Tilnefna Steve Scalise

Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa tilnefnt Steve Scalise til embættis þingforseta. Þingmaðurinn Jim Jordan, sem einnig sóttist eftir embættinu, hefur lýst yfir stuðningi við Scalise.

Sundr­að­ir Rep­úbl­ik­an­ar gefa sér viku

Átta Repúblikanar, af 220 í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, veltu Kevin McCarthy, fyrrverandi forseta fulltrúadeildarinnar, úr sessi í gærkvöldi. Þetta eru margir af sömu þingmönnunum og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×