Innlent

Veist að ungum dómurum: Þrettán ára dómari sagður til skammar fyrir félagið

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Dómarar á knattspyrnumótum eru stundum ungir. Til að mynda á Norðurálsmótinu á Akranesi.
Dómarar á knattspyrnumótum eru stundum ungir. Til að mynda á Norðurálsmótinu á Akranesi. Vísir/Einar

Þrettán ára strákur var sagður vera íþróttafélagi sínu til skammar þegar hann dæmdi leik sex ára barna á fótboltamóti. Þá eru dæmi foreldrar hafi veist að ungmennum sem hafa verið að dæma fótboltaleiki barna.

Á hverju ári keppa tugir þúsunda barna á íþróttamótum á Íslandi og lifa foreldra sig iðulega inn í leikinn. Á fjölmennustu mótunum eru spilaðir mörg hundruð leikir. Til að það gangi upp þarf fjöldann allan af dómurum.

Dómarar oft sjálfir börn

Á meðal þeirra sem sinna dómgæslu eru börn sem æfa hjá íþróttafélögunum. Fjallað var um þetta í þættinum Hliðarlínan sem sýndur var á Stöð 2 og Stöð 2 Sport í gærkvöldi.

„Ég dæmdi fyrsta leikinn minn í fyrra. Þannig ég hef verið þrettán ára,“ segir Morten Ottesen sem æfir fótbolta hjá ÍA. Hann líkt og fleiri á hans aldri hafa reynslu af því að dæma fótboltaleiki hjá yngstu börnunum.

Hægt er að sjá brot úr þættinum Hliðarlínan í spilaranum hér fyrir neðan. Þátturinn í heild er á Stöð 2+.

Dæmi eru um að foreldrar láti þessa ungu dómara heyra það.

„Þegar ég hef verið að dæma þá hef ég verið kallaður skömm fyrir klúbbinn,“ segir Morten.

Valgerður Laufey Guðmundsdóttir þekkir það líka vel að foreldrar geti æst sig og þá séu dæmi um að foreldrar hafi gengið svo langt að veitast að ungu dómurunum. „Vinkona mín lenti í því á Símamótinu að einhver pabbi labbar inn á, grípur hana svona og heldur á henni.“

Íþróttafélögin hafa mörg hver verið með átök, líkt og var á Símamótinu í sumar, þar sem foreldrar eru hvattir til að hegðu sér vel.Vísir/Ívar

Guðjón Guðmundsson starfaði um árabil sem íþróttafréttamaður og í hátt í tvo áratugi gerði hann sérstaka þætti um íþróttamót barna. Hann segir að á þessum tíma hafi mikið breyst. Mótin hafi stækkað og þessum atvikum sem séu slæm hafi fjölgað. Hann sjái á þessum mótum að eftir því sem dómarinn sé yngri fái hann meira að heyra það.

„Fólki finnst það að ég get leyft mér að láta hann heyra það þennan. Þetta er bara krakki. Hann veit ekkert hvað hann er að gera en gleymum því ekki að krakkinn sem er að dæma hann er að gera sitt besta og hann þarf líka hvatningu,“ segir Guðjón.

Í sama streng tekur Áskell Þór Gíslason sem hefur komið að N1 mótinu hjá KA. Hann segir líka snjallsímana hafa breytt miklu. 

„Við sjáum foreldra á hliðarlínunni og þeir eru að taka upp heilu og hálfu leikina. Svo koma svona stöku berservisar inn til okkar til að sýna okkur einstök brot og að þetta hafi átt að vera öðruvísi eða hinsegin. Með símum og upptökutækjum og öllu sem því fylgir þá kannski verður svona grimmara einstök atriði. Einhver sextán ára unglingur dæmir eitthvað víti hérna sem að einhverjum finnst skrítið og það er bara komið á heilt félag. Bara sjáið það hvað var dæmt hjá okkur í dag“

Dómarar of ungir

Engar reglur gilda um aldur dómara á knattspyrnumótum yngri barna.

Þóroddur Hjaltalín er fyrrverandi dómari. Í dag vinnur hann hjá Knattspyrnusambandi Íslands við mál sem snúa að dómgæslu.Vísir/Einar

„Það er auðvitað algjörlega óþolandi að upplifunin sé með þeim hætti að þessir krakkar kannski geta ekki hugsað sér að fara í þessi störf aftur. Þannig að þegar ég fær spurninguna hvort að þau séu of ung fjórtán fimmtán ára já miðað við umhverfið sem við erum að bjóða upp á,“ segir Þóroddur Hjaltalín starfsmaður KSÍ og fyrrverandi dómari.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×