Innlent

Dreifðu grímum á Dubliner og ræddu vopnaburð á Prikinu

Árni Sæberg skrifar
Sakborningar fyrir utan dómsal í Gullhömrum. Þeir máttu ekki vera inni í dómsal á meðan aðrir sakborningar gáfu skýrslu.
Sakborningar fyrir utan dómsal í Gullhömrum. Þeir máttu ekki vera inni í dómsal á meðan aðrir sakborningar gáfu skýrslu. Vísir/Vilhelm

Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins.

Þetta kom fram í skýrslutökum sakborninga við aðalmeðferð málsins, sem fram fer í veislusalnum Gullhömrum vegna gríðarlegs umfangs málsins. Skýrslur voru teknar af sakborningunum 25 á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Á mánudagsmorgun fyrirskipaði dómari málsins að ekki mætti flytja fréttir af efni skýrslutakanna fyrr en að þeim loknum, en þeim lauk í dag.

„Kvöldið í kvöld“

Sækjandi málsins spurði alla sakborninga að því hvernig þeir hefðu fengið veður af því að til stæði að mæta á Bankastræti Club þann 17. nóvember síðastliðinn. Flestir sögðu þeir að þeir hefðu fengið óljósar upplýsingar um það sem til stóð samdægurs eða jafnvel sama kvöld.

Þá spurði sækjandi alla hvort þeir könnuðust við hópspjall á samfélagsmiðlinum Snapchat sem bar heitið Kvöldið í kvöld. Margir þeirra sögðu að þeim hefði verið bætt í spjallið en að þeir hefðu ekkert kannað innihald þess. Þá vildi enginn þeirra gefa upp hver hefði bætt þeim í hópinn.

Dagmar Ösp Vésteinsdóttir sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Steinbergur Finnbogason er réttargæslumaður brotaþola.Vísir/Vilhelm

Einn þeirra gekkst við því að hafa búið hópinn til en sagðist hafa verið beðinn um það. Hann kaus að tjá sig ekki um það hver hefði gert það. 

Sá sætir ákæru í málinu fyrir sérlega hættulega líkamsárás með því að hafa veist að einum brotaþola með ítrekuðum höggum, spörkum og hnéspörkum í höfuð og búk og hrint öðrum brotaþola, svo að hann féll við. Aðdragandi kvöldsins virðist að miklu leyti hverfast um þennan tiltekna sakborning sem stofnaði hópspjallið.

Kveikt í bifhjólum sakbornings

Alexander Máni Björnsson, sem sætir ákæru fyrir þrjár tilraunir til manndráps, sagði í skýrslutöku að hann, ásamt fleirum í hópnum sem réðst inn á Bankastræti Club, hafi viljað ógna meðlimum „Latino-hópsins“ til þess að fá þá til þess að láta af hótunum og ofbeldi í þeirra garð. Hann og besti vinur hans, sem stofnaði Kvöldið í kvöld, hafi þurft að sæta hótunum í að verða fjögur ár, eða frá því að hann var að verða sautján ára gamall.

„Til að byrja með beindist þetta bara að mér og [vininum] út af því að [vinurinn] hafði átt að hafa sofið með fyrrverandi ónafngreinds aðila. Enginn veit af hverju Spánverjarnir blönduðust inn í þetta, Jhon og Gabbi og fleiri,“ sagði Alexander Már.

Þá báru margir sakborningar um það að meðlimir „Latino-hópsins“ hefðu lagt eld að bifhjólum í eigu hans.

„Við ætluðum að fara til að ræða við þá og vildum að þetta myndi bara stoppa, þetta var orðið mjög þreytandi. Síðan fór þetta úrskeiðis. Ég veit ekki hvað skal segja,“ sagði hann.

Hittust á Dubliner og fengu grímur

Sakborningar báru flestir um að þeir hafi mælt sér mót á skemmtistöðunum Dubliner og Paloma, sem eru í sama húsi við Naustin í Reykjavík. Sumir sögðust þó hafa verið þar fyrir tilviljun og bæst þannig í hópinn.

Sakborningar söfnuðust saman á skemmtistaðnum Dubliner. Þar var síðar framin skotárás sem einn sakborninga lenti í.Vísir/Jóhann

Þar hafi þeir rætt hvað til stóð í hálfkveðnum vísum, einhverjir hafi farið að sækja grímur sem þeir höfðu úti í bíl og öðrum verið bent á að þeir gætu fengið grímur við barinn.

Sakborningar sammæltust um það að þeir hafi viljað vera með grímur til þess að menn úr hinum hópnum þekktu þá ekki. Að fela sig frá lögreglunni hafi ekkert haft með það að gera heldur hafi þeir óttast hefndaraðgerðir.

Fóru á Prikið og ræddu að taka ekki með vopn

Ljóst er að minnst einn sakborninganna var vopnaður eggvopni þegar hópurinn réðst inn á Bankastræti Club, þar sem hann hefur gengist við því að hafa stungið tvo brotaþola. Flestir sakborninganna sögðu þó fyrir dómi að ekkert hafi verið rætt um hugsanlegan vopnaburð. Margir þeirra sögðu að þeir hefðu aldrei tekið þátt árásinni hefðu þeir vitað af slíku.

„Það er eitthvað sem ég mun aldrei tileinka mér, að taka þátt í hnífstunguárásum,“ sagði einn þeirra.

Aðrir sögðu hins vegar að vopnaburður hefði verið ræddur og að menn hafi sammælst um það að fara alls ekki vopnaðir á vettvang. Sumir sögðu það hafa verið rætt á skemmtistaðnum Prikinu, þar sem þeir hafi farið eftir að hafa hist á Dubliner en aðrir að það hafi verið rætt strax á Dubliner.

Sækjandi spurði einn sakborninga út í ummæli um eggvopn sem hann viðhafði í skýrslutöku hjá lögreglu. 

„Fólk var að tala um að koma með eggvopn og eitthvað svona, aðrir sögðu að það væri óþarfi."

Fyrir dómi sagði hann að hann hefði ekki vitað hvað eggvopn væri, hann hefði haldið að það væri kylfa. Hann hefði komist að því daginn fyrir aðalmeðferð að eggvopn væru hnífar.

Einum sakborninga er gefið að sök að hafa veist að brotaþolum með lítilli kylfu.

Starfsmaður Bankastrætis Club hafi sagt brotaþola vera þar

Frá Prikinu hafi mennirnir farið í leit að meðlimum Latino-hópsins í þeim tilgangi að ræða við þá. Fá þá til að láta af hótunum og ofbeldi í garð manna úr hópi sakborninga og fólki tengdu þeim.

Einn sakborninga sagði að hann hefði fengið upplýsingar frá starfsmanni Bankastrætis Club að brotaþolinn Jhon Sebastian væri þar og því hafi hersingin haldið þangað og ruðst inn á staðinn.


Tengdar fréttir

Segir at­burða­rásina hafa þróast út í múg­æsingu

Maður á fertugsaldri sem er meðal ákærðu í Bankastræti Club-málinu svokallaða neitar því staðfastlega að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa haft í hyggju að fara inn hið örlagaríka kvöld þegar hópur veittist að þremur mönnum á skemmtistaðnum.

Játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá

Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður.

Fá ekki að hlusta hver á annan

Ákveðið var í undirbúningsþinghaldi í Bankastræti-Club málinu í morgun að sakborningar myndu ekki sitja inni í dómsal í Gullhömrum. Þeir munu sitja því frammi og koma inn einn af öðrum. Verjendur mótmæla ákvörðuninni. Á fimmtudag verður fjölmiðlabanni aflétt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×