Erlent

Síminn og spjaldtölvan tekin af Murdaugh

Samúel Karl Ólason skrifar
Alex Murdaugh með lögfræðingum sínum þegar  hann var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son.
Alex Murdaugh með lögfræðingum sínum þegar hann var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. AP/Joshua Boucher

Dæmdi morðinginn Alex Murdaugh hefur misst aðgang sinn að síma og spjaldtölvu. Það er eftir að lögmaður hans tók Murdaugh upp lesa úr dagbók sinni en upptökuna á að nota í heimildarmynd um mál hans.

Með þessu braut Murdaugh fangelsisreglur en hann er einni sagður hafa brotið fleiri reglur eins og með því að nota lykilorð annars fanga til að hringja símtöl, samkvæmt AP fréttaveitunni. Murdaugh missti einnig rétt sinn á því að kaupa vörur í verslun fangelsisins í mánuð.

Fangelsisreglur í Suður-Karólínu meina föngum að tala við fjölmiðla án leyfis. Talsmaður fangelsismálastofnunar ríkisins segir reglurnar hafa verið settar á svo fórnarlömb dæmdra manna eða fjölskyldur þeirra þurfi ekki að sjá eða heyra í mönnum sem brutu á þeim í fjölmiðlum.

Murdaugh var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi í mars fyrir að myrða eiginkonu sína og son.

Eiginkona og sonur Alex Murdaugh, Maggie Murdaugh, 52 ára, og Paul, 22 ára, voru skotin til bana þann 7. júní 2021, nærri hundabúrum á stórri landareign fjölskyldunnar í Suður-Kaliforníu. Alex Murdaugh hafði samband við Neyðarlínuna umrætt kvöld og sagðist þá hafa komið að þeim látnum eftir um klukkustundar heimsókn til móður sinnar sem sé með elliglöp.

Rannsókn leiddi síðar í ljós að Maggie hafði verið skotin fjórum eða fimm sinnum með riffli en Paul var skotinn tvisvar með haglabyssu og með misstórum höglum. Enginn var handtekinn vegna málsins í rúmt ár en Murdaugh var að lokum ákærður fyrir morðin í júlí á síðasta ári. Hann neitar enn sök.

Morðvopnin fundust aldrei en tuttugu mánuðum eftir morðin kom í ljós að Murdaugh hafði logið um hvar hann hefði verið. Myndband sem fannst á síma sonar hans sýndi að hann var á staðnum þar sem morðin voru framin, fimm mínútum áður en talið er að þau hafi verið framin.

Morðmálið hefur vaktið mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar og hefur meðal annars verið gerð heimildarmynd sem sýnd er á Netflix. Myndin snýr einnig að atviki frá 2019 þegar Paul Murdaugh varð valdur að bátaslysi þar sem ung kona, farþegi í bátnum, dó.

Þegar réttarhöldin gegn Murdaugh fóru fram hélt hann dagbækur og tók lögmaður hans hann upp lesa úr dagbókunum. Var það ætlað í heimildarmynd sem Fox Nation er að vinna að. Samkvæmt frétt AP hefur lögmanninum verið gert ljóst að hjálpi hann skjólstæðingi sínum aftur að brjóta reglur fangelsisins verði honum meinaður aðgangur að Murdaugh.

Murdaugh mun aftur sjást í dómsal í næsta mánuði en þá er búist við því að hann muni játa að hafa stolið milljónum dala af skjólstæðingum sínum. Það verður í fyrsta sinn sem hann játar glæp en saksóknarar hafa haldið því fram að Murdaugh hafi framið morðin til að fá samúð, þar sem hann bjóst við því að þjófnaður hans væri við það að líta dagsins ljós.


Tengdar fréttir

Sátt náðst um miska­bætur til handa fjöl­skyldu Beach

Sátt hefur náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Mallory Beach og annarra ungmenna sem voru um borð í bát í eigu Alex Murdaugh sem ekið var á brúarstólpa árið 2019. Murdaugh var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína og yngri son, Paul, sem var við stýrið á bátnum.

Líkams­leifar pilts grafnar upp vegna Mur­d­augh-málsins

Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×