Íslenski boltinn

Er­lendur dómari gaf Emil þrennuna: Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Atlason er kominn með tíu mörk í Bestu deild karla í sumar eftir að Erlendur Eiríksson dómari skráði á hann öll þrjú mörkin í gær.
Emil Atlason er kominn með tíu mörk í Bestu deild karla í sumar eftir að Erlendur Eiríksson dómari skráði á hann öll þrjú mörkin í gær. Vísir/Diego

Stjörnumaðurinn Emil Atlason hélt að hann hefði ekki fengið þrennuna skráða í 4-0 sigri Stjörnunnar á Fylki í Bestu deild karla í fótbolta í Árbæ í gærkvöldi en dómarar leiksins ákváðu eftir allt saman að skrá þrjú mörk á hann.

Þrennan var loks staðfest eftir að dómarar leiksins gengu frá leikskýrslunni eftir leikinn.

Þriðja mark leiksins var ýmist skráð á Emil eða sem sjálfsmark í fjölmiðlum.

Í vafamarkinu skallaði Emil boltann í slána og niður en á leið sinni fór boltinn í Ólaf Kristófer Helgason markvörð Fylkis og í markið.

Ólafur var hins vegar mjög nálægt marklínunni og því kannski erfitt að sjá eða sanna það hvort boltinn sé á leiðinni inn fyrir marklínuna eftir að hann fer í slána.

Erlendur Eiríksson dómari hefur greinilega talið að boltinn hafi verið á leiðinni inn fyrir línuna og því var markið skráð á Emil.

Hér fyrir neðan má sjá öll fjögur mörkin úr þessum sannfærandi sigri Stjörnuliðsins í Árbænum.

Klippa: Mörkin úr leik Fylkis og Stjörnunnar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×