Fundu nýjan stjóra strax fyrir leikinn við Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 9. ágúst 2023 16:01 Gary O'Neil gerði stórgóða hluti með Bournemouth á síðustu leiktíð en var þó látinn fara frá félaginu. Nú er hann tekinn við Wolves. Getty/Adam Davy Úlfarnir eru komnir með nýjan knattspyrnustjóra nú þegar aðeins fimm dagar eru þar til að þeir hefja keppnistímabil sitt í ensku úrvalsdeildinni með leik við Manchester United.
Gary O'Neil, sem áður var knattspyrnustjóri Bournemouth, var í dag tilkynntur sem nýr stjóri Wolves og skrifaði hann undir samning til þriggja ára við félagið. O'Neil tekur við af Julen Lopetegui sem óvænt yfirgaf félagið eins og tilkynnt var um í gær. Það þótti ekki síður óvænt þegar O'Neil var rekinn frá Bournemouth í júní eftir að hafa stýrt liðinu til 15. sætis í ensku úrvalsdeildinni. Liðið vann 11 af 27 leikjum sínum undir stjórn hans, eftir að hann tók við af Scott Parker sem var rekinn í fyrra. O'Neil, sem er fertugur, er fjórði stjóri Wolves á síðustu tveimur árum. Eins og fyrr segir verður fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn gegn Manchester United, á Old Trafford á mánudaginn. Lopetegui kaus að yfirgefa Wolves þar sem honum þótti forráðamenn félagsins ekki hafa staðið við gefin loforð varðandi kaup á leikmönnum í sumar, eftir að honum tókst að stýra liðinu frá falli í vor. Í sumar hafa Úlfarnir selt Ruben Neves til Al-Hilal í Sádi-Arabíu fyrir 47 milljónir punda, og mexíkóska framherjann Raul Jimenez til Fulham fyrir fimm milljónir punda. Félagið hefur hins vegar ekkert verið að kaupa leikmenn, en reyndar endurheimt írska bakvörðinn Matt Doherty frítt í júlí.
Enski boltinn Mest lesið Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Körfubolti Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Fótbolti Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Sendu Houston enn á ný í háttinn Körfubolti Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Formúla 1 Fleiri fréttir Staðfestir brottför frá Liverpool Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Hamrarnir jöfnuðu gegn Spurs en biðin eftir sigri lengist enn Yngstur til að byrja leik fyrir United í ensku úrvalsdeildinni Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Benóný kom inn af bekknum og skoraði í lokaumferðinni Klúður hjá Everton gegn Ipswich og langþráður sigur Leicester Vardy blés í flautu dómarans þegar hann féll við Leeds vann B-deildina en Plymouth og Luton féllu Mikilvægur sigur Villa í Meistaradeildarbaráttunni De Bruyne sá til þess að meistararnir sluppu fyrir horn gegn Úlfunum Eigandi Chelsea þekkti ekki Ruud Gullit Fagnaðarlæti Púlara mældust á jarðskjálftamælum Beckham fimmtugur í dag Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Trans konum bannað að spila í kvennaflokki á Bretlandi Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Chelsea meistari sjötta árið í röð Rodri aftur til æfinga en sagður bíða eftir HM Sádar eltast við þrjá framherja Liverpool ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City Sjá meira