Körfubolti

Tvíburasystur sameinaðar á ný með Njarðvík

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Samningurinn handsalaður
Samningurinn handsalaður KKD Njarðvík

Njarðvík hefur borist liðsstyrkur fyrir átökin í Subway deildinni í körfubolta á komandi leiktíð.

Í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Njarðvíkur kemur fram að tvíburasysturnar Anna og Lára Ásgeirsdætur hafi báðar gert nýjan tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. 

Anna og Lára koma úr yngri flokka starfi félagsins og urðu báðar Íslandsmeistarar með Njarðvík í Subway deild kvenna á þarsíðustu leiktíð. Eftir titilinn hélt Lára í víking til Bandaríkjanna og var þar við nám á síðustu leiktíð en er nú komin í grænt á nýjan leik.

„Systurnar eru mikilvægur hlekkur í liðinu okkar, öflugir leikmenn og jákvæðir einstaklingar. Það er alltaf gaman að gera samninga við uppalda leikmenn félagsins og ljóst að Anna og Lára munu fá mikil og verðug verkefni með Njarðvík á komandi tímabili í Subwaydeild sem er jöfn og spennandi,” sagði Halldór Karlsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×