Körfubolti

Var ná­lægt því að ganga í raðir Tinda­stóls

Aron Guðmundsson skrifar
Kristófer Acox, leikmaður Vals og íslenska landsliðsins í körfubolta.
Kristófer Acox, leikmaður Vals og íslenska landsliðsins í körfubolta. Vísir/Arnar Halldórsson

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Kristófer Acox leikmaður Vals, var nálægt því að ganga í raðir Íslandsmeistara Tindastóls eftir síðasta tímabil en segir að á endanum hafi það reynst erfið tilhugsun að ganga til liðs við liðið sem tók titilinn af honum og Val. Hann hefur nú samið við Val til næstu tveggja ára.

Tinda­stóll varð Ís­lands­meistari í körfu­bolta eftir sigur á Val í odda­leik magnaðs úr­slita­ein­vígis liðanna. Niður­staða sem hefur sviðið yfir lengri tíma fyrir Kristófer og liðs­fé­laga hans hjá Val sem áttu titil að verja.

Hvernig voru dagarnir og vikurnar eftir þessa niður­stöðu?

„Þær voru þungar, ég get viður­kennt það. Maður var náttúru­lega bara lítill og í sjokki eftir að við höfðum misst þetta frá okkur. Við vorum þannig séð með unninn leik en þessa at­burða­rás hefur maður spilað aftur og aftur í hausnum á sér í allt sumar en við þurfum að sætta okkur við þetta og lífið heldur á­fram. Núna erum við búnir að vera með þetta ó­bragð í munninum í smá tíma og nú tel ég okkur klára í næsta tíma­bil.“

Hugurinn leitaði alltaf til Hlíðarenda

Í við­tali eftir odda­leikinn var Kristófer spurður út í fram­tíð sína þar sem hann sagði ekkert á­kveðið, hún yrði bara að fá að koma í ljós.

„Maður er gripinn í við­tal þarna nokkrum sekúndum eftir tapið í odda­leiknum og fæ þessa spurningu á sig, hvað sé að fara taka við hjá mér á næsta tíma­bili. Ég man að ég sagði eitt­hvað á þá leið að það væri ekkert ljóst en auð­vitað var ég samnings­bundin Val á þessum tíma.“

„Ég var svo með á­kvæði í samningnum mínum sem ég nýtti mér eftir tíma­bilið og rifti honum en var þá að vonast á sama tíma eftir því að geta endur­samið við Val. Ég gaf mér smá tíma í það og var svo sem þannig séð ekkert að gefa færi á mér. Ég held að fólk hafi ekkert lesið vit­laust í svarið frá mér en hugurinn leitaði alltaf í að vera á­fram hérna á Hlíðar­enda.“

„Ná­lægt því að taka því til­boði“

Svo fóru af stað sögu­sagnir sem gerðu stuðnings­menn Vals uggandi. Ís­lands­meistarar Tinda­stóls höfðu á­huga á að fá Kristófer til liðs við sig og átti hann í við­ræðum við þjálfara liðsins, sinn gamla liðs­fé­laga Pa­vel Er­molinskij um mögu­leg fé­lags­skipti.

„Þetta voru í rauninni bara við­ræður við Pa­vel. Ég og hann erum nánir og við töluðum saman eftir úr­slita­ein­vígið, þegar að von­brigðin eftir leikinn og tapið höfðu að­eins sjattlast.

Hann var í bænum og við eigum gott sam­band okkar á milli. Þessar við­ræður byrjuðu ekkert á al­var­legu nótunum en svo þróaðist þetta svona meira í áttina að því að mögu­lega í­huga ein­hverja kosti.

Ég er náttúru­lega bara þakk­látur fyrir á­hugann og öll þau sam­skipti sem við Pa­vel áttum hvað þetta varðar, þau voru bara góð og á endanum var þetta eitt­hvað sem ég var til í að fara skoða (að skipta yfir í Tinda­stól) og var í rauninni svo­lítið ná­lægt því að taka því til­boði.“

Kristófer Acox og Pavel Ermolinskij náðu vel saman á tíma sínum saman hjá Val og áður KR. Vísir Bára

„En mig langaði að vera á­fram í bænum og halda á­fram að spila með mínum strákum hér í Val. Þá þurfti maður auð­vitað líka að taka það inn í myndina að það yrði erfitt að fara og spila fyrir liðið sem var að sigra þig og taka af þér titilinn. Ég er al­sæll með að hafa fram­lengt dvöl mína hjá Val.“

Tilboð Stólanna leit ágætlega út

Á þeim tíma­punkti sem Kristófer ræddi við Pa­vel Er­molinskij um mögu­leg fé­lags­skipti yfir til Tinda­stóls fóru á kreik sögu­sagnir þess efnis að stærsti samningur sem nokkur leik­maður hér á landi hefði fengið á borð sitt, væri á borði Kristófers frá Tinda­stól.

Var fótur fyrir þeim sögu­sögnum?

„Ég veit það ekki. Ég fékk bara til­boð og það leit á­gæt­lega út en ég á­kvað að hafna því.“

Svíður enn

Fram­tíð Kristófers er hjá Val, hann hefur samið við félagið til næstu tveggja ára og lýst honum vel á næsta tíma­bil hjá liðinu.

„Við höfum náð að negla þennan sterka ís­lenska kjarna sem við vorum með í fyrra og ég held að það sé mjög mikil­vægt, sér­stak­lega fyrir deildina núna þar sem að það eru í raun og veru engar tak­markanir á er­lendum leik­mönnum og við vitum í rauninni ná­kvæm­lega hvað við erum að fá frá öllum þeim leik­mönnum sem við erum með núna.“

Þeir vinna vel saman, Kristófer Acox og Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari ValsVísir Bára

„Nú þarf bara að pússla saman þessum er­lendu leik­mönnum í kringum okkur núna. Við eigum von á tveimur til þremur er­lendum leik­mönnum og vonandi næst líka að endur­semja við á­kveðna er­lenda leik­menn sem voru með okkur í fyrra en það verður bara að koma í ljós. Eins og staðan er núna erum við bara spenntir fyrir komandi tímum.“

Segir Kristófer sem viður­kennir að vera með meira blóð á tönnunum fyrir komandi tíma­bil eftir von­brigðin undir lok þess síðasta.

„Þetta er búið að svíða og svíður enn. Maður hefur ein­hvern veginn þurft að tala aftur og aftur um þetta við enda­laust af fólki, um þennan odda­leik og hvernig þetta endaði en ég vona að við nýtum þetta ó­bragð sem við erum með í munninum eftir þetta og mætum brjálaðir til leiks strax í haust.“

Gaf út smáskífu á dögunum

Þessi öflugi leik­maður og lands­liðs­maður hefur haft í nægu að snúast undan­farna mánuði á meðan að deildin hér heima er í fríi og á dögunum opin­beraði hann ó­vænta hlið á sér er hann gaf út smá­skífuna Bjartar nætur undir lista­manns­nafninu Acox.

Smá­skífan inni­heldur tvö lög, Hún vill koma nær og Fyrir þig en Kristófer segir að lista­maðurinn hafi kannski blundað innst innra með sér í einhvern tíma.

„Þetta er eitt­hvað sem við byrjuðum að leika okkur með í fyrra og eftir síðasta tíma­bil hefur maður haft meiri frí­tíma til þess pæla að­eins í þessu. Þetta byrjaði sem smá djók en hefur nú endað í lögum sem við á­kváðum að gefa út. Ég er bara mjög stoltur af því að hafa stigið svo­lítið út fyrir minn þæginda­ramma og leyft fólki að sjá aðra hlið á mér.“

Ó­víst sé þó á þessari stundu hvort þetta sé eitt­hvað sem hann muni taka sér fyrir hendur.

„En það er aldrei að vita, ég er alla­vega mjög á­nægður með þetta.“

Hvaðan ertu að sækja inn­blásturinn í þessi lög sem prýða smá­skífuna?

„Frá því að ég var ungur strákur hef ég alltaf verið með tón­list í gangi í kringum mig, hlustað mikið á rapp sem og R&B tón­list. Þetta eru tvö mis­munandi lög, Hún vill koma nær er kannski svona meira sumar­hittari með dans­fíling og skír­skotun í popp en í Fyrir þig sæki ég inn­blástur í einn af mínum upp­á­halds lista­mönnum, Dra­ke.

Ég er mikill Dra­ke-maður og er í sama gír og Jón Bjarni, Ás­geir og strákarnir sem eru að vinna þetta með mér. Þetta er svona svipað sound, sem maður er kannski ekki alveg vanur að heyra, sér í lagi á ís­lensku. Þetta er eitt­hvað sem er skemmti­legt að geta nýtt mína djúpu rödd í. Ég hef alltaf vitað að ég gæti sungið, kannski ekki margir sem héldu að ég gæti það en hérna er ég að stíga fram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×