Erlent

Týndur á­hrifa­valdur fannst sundur­li­maður í ferða­tösku

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Líkamsleifar áhrifavaldsins Fernando Pérez Algaba fundust í rauðri ferðatösku. Hann var líklega myrtur af argentínskum gengjameðlimum vegna skulda.
Líkamsleifar áhrifavaldsins Fernando Pérez Algaba fundust í rauðri ferðatösku. Hann var líklega myrtur af argentínskum gengjameðlimum vegna skulda. Instagram

Líkamsleifar manns fundust sundurlimaðar í rauðri ferðatösku í bænum Ingeniero Budge í Buenos Aires-héraði um helgina. Argentínska lögreglan hefur hafið morðrannsókn í málinu.

Börn að leik fundu ferðatöskuna við læk í bænum og tilkynntu foreldrar þeirra málið til lögreglunnar. Í ferðatöskunni fundust fætur og framhandleggur og neðar í læknum fannst handleggur. Á miðvikudag fann lögreglan höfuð og skrokk í læknum.

Líkamsleifarnar reyndust vera af hinum 41 árs gamla Fernando Pérez Algaba, rafmyntaríkum milljónamæringi og áhrifavaldi, sem hafði verið saknað frá miðvikudeginum 19. júlí.

Við krufningu kom í ljós að Algaba hafði verið skotinn þrisvar áður en líkami hans var bútaður niður. Samkvæmt argentínskum fréttamiðlum virtust atvinnumenn hafa verið að verki þar sem skurðirnir voru mjög snyrtilegir.

Leigði út glæsikerrur og sæþotur

Algaba sem gekk undir viðurnefninu Lechuga (Salat á íslensku) meðal vina sinna kvaðst hafa farið snemma út í frumkvöðlastarfsemi þegar hann byrjaði fjórtán ára að selja samlokur.

Algaba leigði út sæþotur í Miami.Instagram

Hann fór síðan út í sölu á notuðum bílum og var kominn með stórt vöruhús af lúxusbílum, mótorhjólum og sæþotum áður en hann varð 24 ára. 

Fyrr á árinu flutti hann til Miami í Flórída þar sem hann leigði út glæsikerrur og sæþotur. Undanfarin ár rak Algaba einnig skrifstofu í Buenos Aires með yfir 25 starfsmönnum þar sem hann verslaði með rafmyntir. 

Þá hafði hann sankað að sér miklum fylgjendahópi á Instagram, eða rúmlega 900 þúsund fylgjendum.

Algaba flutti til Barcelona á síðasta ári en hafði verið í vikufríi í Argentínu áður en hann hvarf.

Óttaðist um líf sitt

Ríkidæmi Algaba virðist þó hafa verið á sandi byggt. Hann hafði sankað að sér tæplega hálfrar milljónar króna skuld hjá skattinum í Argentínu eftir að greiðslur hættu að berast frá fyrirtæki hans „Motors Lettuce S.R.L.“ tæpu ári eftir að fyrirtækið var stofnað í janúar 2018.

Algaba var með rúmlega 900 þúsund fylgjendur á Instagram og sýndi þar frá íburðarmiklum lífstíl sínum.Instagram

Þann 1. október 2022 sendi Algaba skilaboð á vini sína til að segja frá því að hann hefði tapað miklum pening á rafmyntum og væri stórskuldugur. 

Í skilaboðunum sagði hann „Ef eitthvað kemur fyrir mig, er ég búinn að vara alla við.“

Rodolfo Algaba, bróðir Fernando, sagði í viðtali við fjölmiðla að bróðir sinn hefði verið óheppinn í viðskiptum en hann hefði ekki verið neinn fjársvikari. 

Hann greindi einnig frá því að Fernando hefði stofnað fyrirtæki sitt sautján ára eftir að hann fékk arf frá föður þeirra. Sögur af harki Algaba eru því líklega ýktar.

Lenti upp á kant við ranga menn

Samkvæmt argentínska fréttamiðlinum La Nación hafði Algaba lent upp á kant við einn af höfuðpaurum La Barra de Boca, gengi fótboltabulla sem tengist fótboltaliðinu Boca Juniors. 

Algaba á að hafa skuldað þeim rúma 40 þúsund Bandaríkjadali (um fimm milljónir íslenskra króna). Algaba hitti Gustavo Iglesias, einn af meðlimum Barra de Boca, á bar vegna skuldarinnar. Þar tók hann upp hljóðupptöku af Iglesias.

Algaba leigði út lúxuskerrur í Miami og sagðist vera milljónamæringur. Í raun var hann stórskuldugur og lenti upp á kant við ranga menn.Instagram

Í henni sagði Iglesias „Ég ætla ekki að drepa þig, ég ætla að gera eitthvað verra, ég ætla að fjarlægja úr þér augun og skera af þér hendurnar þannig þú getir aldrei nokkurn tímann aftur talið peninga. Ég sver á líf barna minn að ég er ekki hræddur við að fara í fangelsi.“

Lögreglan hefur handtekið einn einstakling í tengslum við málið. Það er konan Nicol Alma Chamorro sem lögreglan hafði upp á með því að rekja spor persónuskilríki sem fundust í töskunni. Skilríkin voru í eigu fjölskyldu sem sagðist hafa lánað Chamorro töskuna og gleymt skilríkjunum inni í henni.

Chamorro er grunuð um að eiga þátt í morðinu á Algaba en lögreglan telur þó fleiri hafa verið viðriðna morðið. Hverjir það eru er þó  enn óvitað. Þá er franski bolabíturinn Kupper sem var í eigu Algaba enn ófundinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×