Lífið

Vinaparið nefndi dótturina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fjölskyldumynd frá deginum.
Fjölskyldumynd frá deginum. Þórdís Imsland

Vinirnir og tónlistarmennirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðvarsson nefndu dótturina, sem kom í heiminn 4. júlí síðastliðinn. Stúlkan fékk nafnið Stella Katrín Sigurjónsdóttir Imsland í blíðviðrinu í gær. 

Þórdís deildi gleðifregnunum á samfélagsmiðlum ásamt myndum af fjölskyldunni.

Stúlkan er annað barn þeirra saman en fyrir eiga þau Óðinn fæddan 2021.

Þórdís og Sigurjón hafa aldrei verið í  ástarsambandi, heldur eru þau góðir vinir sem dreymdi bæði um að eignast barn. 

Fjallað var um fjölskyldu Þórdísar og Sigurjóns í Íslandi í dag í fyrra eftir að þau eignuðust Óðinn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×