Erlent

Saka Úkraínumenn enn um hryðjuverkaárásir

Samúel Karl Ólason skrifar
Ein bygginging sem sögð er hafa skemmst vegna dróna í Moskvu í morgun. Rússar lýsa árásinni sem hryðjuverkaárás, eins og þeir segja oft um meintar árásir Úkraínumanna.
Ein bygginging sem sögð er hafa skemmst vegna dróna í Moskvu í morgun. Rússar lýsa árásinni sem hryðjuverkaárás, eins og þeir segja oft um meintar árásir Úkraínumanna. AP

Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur sakað Úkraínumenn um hryðjuverkaárás í Moskvu í morgun. Ráðuneytið segir að árás með tveimur drónum hafi verið stöðvuð og að þeir hafi brotlent í borginni en borgarstjóri Moskvu segir tvær byggingar hafi orðið fyrir skemmdum en engan hafi sakað.

Rússar munu hafa notað rafbúnað til að rugla drónana svo þeir brotlentu á tveimur byggingum en í frétt Reuters segir að önnur byggingin sé ekki langt frá Varnarmálaráðuneyti Rússlands.

Rússar segja Úkraínumenn einnig hafa reynt „hryðjuverkaárás“ á Krímskaga, sem Rússar hernámu og innlimuðu ólöglega árið 2014. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir sautján drónum hafa verið flogið að skaganum í nótt en að fjórtán hafi verið ruglaðir svo þeir brotlentu í sjónum, þrír brotlentu á landi og þrír eru sagðir hafa verið skotnir niður.

Undanfarna viku hafa Rússar látið sprengjum rigna yfir hafnarborgina Odessa og nærliggjandi byggðir í suðurhluta Úkraínu. Það er eftir að Rússar neituðu af framlengja kornsamkomulagið svokallaða, sem gerði Úkraínumönnum kleift að flytja út korn og Rússum að flytja út áburð.

Höfnin í Odessa var notuð til að flytja korn frá Úkraínu en árásir Rússa hafa að miklu leyti beinst að innviðum þar. Rússar eru sagðir hafa brennt minnst sextíu þúsund tonn af korni í höfninni á einni viku.

Minnst einn dó í árásum Rússa á borgina í gær og 22 eru særðir. Árásirnar hafa meðal annars valdið verulegum skemmdum á frægri dómkirkju sem er á minjaskrá UNESCO.

Í nótt flugu Rússar sjálfsprengjudrónum að hafnarinnviðum á ánni Danúb, að virðist með því áframhaldandi markmiði að gera útflutning korns frá Úkraínu erfiðari í framkvæmd. 


Tengdar fréttir

„Hérna er allt þægi­legt og kósí og mjúk teppi“

Hjón búsett í Úkraínu undirbúa nú listasýningu í Reykjavík, sem fjallar um innri ró þrátt fyrir yfirþyrmandi erfiðleika vegna innrásar Rússa. Verkin sem verða til sýnis voru unnin í Kænugarði, oft í niðamyrkri vegna rafmagnsleysis eftir árásir Rússa á borgina.

Girkin handtekinn fyrir að gagnrýna Pútín

Igor Girkin, fyrrverandi yfirmaður í Leyniþjónustu Rússlands (FSB) og fyrrverandi leiðtogi aðskilnaðarsinna í Dónetsk í Úkraínu, var handtekinn í Moskvu í morgun. Girkin var einnig í fyrra dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir aðkomu hans að því þegar MH17, flugvél Malasyia Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014.

Byrjaðir að nota klasasprengjur

Úkraínumenn eru byrjaðir að skjóta klasasprengjum að varnarlínum Rússa í suður- og austurhluta Úkraínu. Þá leggja bakhjarlar Úkraínu áherslu á að laga hergögn Úkraínumanna sem skemmast í þeim hörðu átökum sem eiga sér stað í landinu.

Fimleikarnir hleypa Rússunum inn á ný

Alþjóða fimleikasambandið hefur fellt úr gildi bann rússneskra og hvít-rússneskra fimleikamanna. Þeir mega keppa á ný en þó ekki undir fána þjóða sinnar.

Brotthvarf Rússa frá kornsamkomulaginu byggt á rússneskri lygi

Rússar gerðu mikla eldflauga- og drónaárás á hafnarborginna Odessa í Úkraínu í nótt. Fjöldi eldflauga og dróna náðu alla leið og ollu miklum skemmdum aðallega á hafnarsvæði borgarinnar. Úkraínumenn gerðu einnig eldflaugaárás á rússneska herstöð á suðurhluta Krímskaga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×