Lífið

Stjörnulífið: Avatar gæsun og Páll Óskar þreyttur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sól, blíða og utanvegahlaup einkenndu helgina.
Sól, blíða og utanvegahlaup einkenndu helgina.

Sól, blíða og bros einkenndi síðastliðna viku hjá landsmönnum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu eftir langa bið. 

Fjöldi fólks tók þátt í Laugavegshlaupinu á laugardag þar sem hlaupið var 53 kílómetrar. Þar á meðal var ofurhlaupafólkið Mari Jaersk, Þorsteinn Roy Jóhannsson og Snorri Björnsson. 

Númer sjö

Hlauparinn Arnar Pétursson bar sigur úr býtum í hlaupinu. Hann kláraði 53 kílómetra á 4 klukkutímum og 48 sekúndum.

Úrslitin má nálgast hér.

Ástfangnir í Svíþjóð

Helgi Ómarsson, ljósmyndari og unnusti hans, Pétur Björgvin Sveinsson njóta veðurblíðunnar í Malmö í Svíþjóð um þessar mundir en parið er í heimsókn hjá systur Péturs.

Þakklát fyrir sitt

Athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir segist þakklát fyrir störfin og fólkið sitt. Camilla rekur verslunina Camy collections ásamt því að vera áhrifavaldur.

Núllstilling á Krít

Grínistinn Eva Ruza Miljevic og fjölskylda tóku skyndiákvörðun á dögunum og fóru í frí til Krítar. 

„Besta skyndiákvörðun í heimi að stökkva til Krítar, svamla með skjaldbökum, hangsa á ströndinni, hlæja, spila, borða ís, keyra snarbratta fjallavegi með gríska rapptónlist í botni og vera saman. Mamman í ferðinni náði líka gjörsamlega að núllstilla sig eftir margra mánaða tempó,“ skrifar Eva við skemmtilega myndafærslu.

 Búinn á því

Poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson var þreyttur eftir annasama helgi en telur niður dagana og safnar orku fyrir komandi bæjarhátíðir á næstu vikum.

Bruce Springsteen tónleikar 

Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson fór tónleika Bruce Springsteen á dögunum og segir þá allra bestu tónleika sem hann hafi farið á.

„Fór á allra bestu tónleika sem ég hef nokkurn tímann séð í kvöld. Springsteen er 73 ára en hélt þriggja tíma show án hlés og var gjörsamlega stórkostlegur,“ skrifar Valdimar við myndskeið af sér syngja hástöfum.

Með vindil í hlýrabol

Rapparinn Herra Hnetusmjör birti mynd af sér með stærðarinnar vindil í London á dögunum. Hver er sinnar gæfu smiður, skrifaði hann við myndina.

Brúðkaupsafmæli

Listaparið María Birta Bjarnadóttir og Elli Egilsson fögnuðu níu ára brúðkaupsafmæli um helgina. 

Afmælisvika 

Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona, verður þrítug í vikunni og birti að því gefnu myndafærslu af sér úr brúðkaupi liðna helgi.

Flug-systur

Dansarinn Sólbjört flaug með systur sinni til New York á dögunum. Sólbjört starfar sem flugfreyja en systir hennar sem flugmaður hjá Icelandair.

Systir flaug þeim á meðan ég henti í þau kaffi og bagettum, skrifaði Sólbjört við myndafærslu af þeim í stóra eplinu.

Frá annarri plánetu

Viktor Andersen, hjúkrunarfræðingur skrifar „not my home planet, eða ekki mín veröld og setur geimveru-tjákn við mynd af sér með skærbleikt hár. 

Gæsun og gleði

Samfélagsmiðlastjarnan og verkfræðingurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir gengur að eiga Markus Wass­er­baech í annað sinn á næstu dögum, í þetta sinn á Íslandi. Hjónin eru búsett í Þýskalandi og gengu í það heilaga við litla og athöfn í ráðhúsinu í þar í landi þegar tíu manna samkomutakmarkanir voru í gang vegna heimsfaraldursins. 

Vinkonur Katrínar komu henni á óvart um helgina með heljarinnar dagskrá og skemmtun. Katrín birtir myndir af deginum þar sem hún var látin klæðast Avatar búning þar sem hún er mikill aðdáandi samnefndra kvikmynda.

Móskarðshnjúkar

Athafnakonurnar Birgitta Líf Björnsdóttir og Alexandra Helga Ívarsdóttir fóru í göngu á Móskarðshnjúkum á dögunum þar sem veðrið og útsýnið var einstakt.

Erfitt hlaup

Ofurhlaupakonan Mari Jaersk vildi helst fara að gráta eftir að hafa hlaupið Laugaveginn um helgina. Hlaupið var 53 kílómetrar. 

 Hárið aðal málið

Sunneva Einarsdóttir áhrifavaldur og raunveruleikastjarna var ánægð með hárið á sér. „Þegar hárið er aðal málið.“


Tengdar fréttir

Kjóla­tískan í brúð­kaupum sumarsins

Brúðkaupstímabilið stendur sem hæst um þessar mundir. Fjöldi fallegra mynda af brúðhjónum og gestum hafa verið áberandi liðnar vikur á samfélagsmiðlum. Kjólaval fyrir veisluhöldin getur reynst vandasamt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×