Innlent

Hefur í­trekað slasast við að reyna komast á salernið heima hjá sér

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Stefán Gauti Stefánsson er með MS sjúkdóminn og hefur ítrekað slasað sig í íbúð sinni vegna skorts á hjólastólaaðgengi.
Stefán Gauti Stefánsson er með MS sjúkdóminn og hefur ítrekað slasað sig í íbúð sinni vegna skorts á hjólastólaaðgengi. Vísir/Ívar Fannar

Karlmaður á fimmtugsaldri með MS sjúkdóminn, sem leigir íbúð á vegum Félagsbústaða, hefur ítrekað dottið og slasað sig vegna skorts á hjólastólaaðgengi í íbúðinni. Félagsbústaðir telja ekki réttlætanlegt að laga íbúðina að þörfum hans og vilja að hann flytji. 

Stefán er fjörutíu og þriggja ára og greindist með MS sjúkdóminn árið 2018. Hann er í hjólastól og lamaður á vinstri hlið. Árið 2018 var Stefán á almennum leigumarkaði og missti íbúð sína þegar hún var seld. 

Í kjölfarið varð hann heimilislaus þar það reyndist honum erfitt að finna íbúð á almennum leigumarkaði með hjólastólaaðgengi. Þá var hann á biðlista eftir félagslegu húsnæði og svo fór að hann endaði í Gistiskýlinu við Lindargötu. Eftir um það bil þriggja mánaða veru í þar fékk Stefán svo íbúð hjá Félagsbústöðum.

Algjör martröð

„Þá troða þeir mér hingað og reyna að ljúga því að mér að þetta sé íbúð alveg sérstaklega ætluð fyrir hreyfihamlaða og fólk í hjólastól sem er náttúrulega bara haugalygi,“ segir Stefán. Það sé algjör martröð að vera í hjólastól í íbúðinni. Við komuna til Stefáns mátti sjá miklar skemmdir á veggjum enda ansi þröngt og lítið pláss fyrir rafmagnshjólastól Stefáns. 

„Ég kemst ekki neitt ég kemst aðeins inn á klósett ef ég skil stólinn eftir úti og nánast skríð inn á klósett. Ég kemst ekki inn í eldhús ég kemst inn er ég þarf að bakka út. Ég get ekki snúið við ég þurfti að færa ísskápinn hingað fram bara svo ég gæti komist í hann,“ segir Stefán og bendir á ísskápinn í stofunni. 

Hann hefur ítrekað óskað eftir að breytingar verði gerðar á íbúðinni. Meðal annars stækkun á baðherbergishurðinni sem hann kemst ekki inn um í hjólastólnum þar sem hurðin er 70 sentímetrar en hjólastóllinn níutíu. Stefán segir svör Félagsbústaða loðin. 

„Ég hef beinbrotnað og blóðgast margoft og liggja í gólfinu hérna því ég flýg á hausinn sko því ég þarf að standa upp sem er ekkert auðvelt.“

Ítrekað dottið og slasast

Lögmaður Stefáns óskaði eftir svörum frá Félagsbústöðum vegna málsins þann 15. júní síðastliðinn en þar kemur meðal annars fram að hætta stafi af skorti á aðgengi. Stefán hafi ítrekað dottið og slasast við það að fara úr stólnum við baðherbergisdyrnar. 

„Ég hef beinbrotnað og blóðgast margoft og liggja í gólfinu hérna því ég flýg á hausinn sko því ég þarf að standa upp sem er ekkert auðvelt,“ segir Stefán en blóðslettur má sjá á veggjum heimilisins.

Í svari Félagsbústaða til lögmanns Stefáns kemur fram að þeim beri engin skylda til breyta leiguíbúð. Þá hafi niðurstaða heimaathugunar leitt í ljós að íbúðin mæti ekki þörfum hans og því þætti ekki réttlætanlegt að fara í nefndar breytingar á íbúðinni sem auk þess væru kostnaðarsamar. 

Ánægður með staðsetninguna

Stefán ætti að óska eftir milliflutning en Stefáni hugnast það ekki. „Þau vilja troða mér upp í Úlfarsárdal, eins langt í burtu frá læknum og allri þjónustu sem ég þarf,“ segir Stefán en hann býr nú við Mjóddina þar sem stutt er í alla þjónustu. 

Að sögn Stefáns hefur honum verið hafnað um NPA-þjónustu á þeim grundvelli að það væri ekki nógu vel reynt á þjónustu félagsþjónustunnar. Hann er með heimilisþrif einu sinni í viku en Stefán segir því ekki sinnt vel. „Ekki minnast á það, þau eru búin að ræna mig svo rosalega. Svindla og svíkja á mér. Þetta eru fleiri hundruð þúsund,“ segir Stefán og bætir við að það sé hrikalega illa þrifið. „Til dæmis í síðustu viku komu þær og settu bara í þvottavél. Ryksuguðu ekki, tóku ekki ruslið, skiptu ekki á rúminu, ekki neitt.“

Vísa á Reykjavíkurborg

Stefán telur það vera einfalt verk að lagfæra íbúðina svo hún henti honum en Félagsbústaðir eru ekki sammála. Þeir hafa meðal annars bent Stefáni á að hafa samband við velferðarsvið Reykjavíkurborgar. „Miðað við lýsingar á líkamlegu ástandi hans kann hann að uppfylla skilyrði þess að fá úthlutað húsnæði fyrir fatlaða,“ segir jafnframt í bréfi frá lögmanni Félagsbústaða til lögmanns Stefáns. 


Tengdar fréttir

Telja bóta­fjár­hæð borgarinnar geta numið hundruðum milljóna króna

Landssamtökin Þroskahjálp telja að Reykjavíkurborg sé bótaskyld gagnvart öllum fötluðum umsækjendum á biðlista um sértæk húsnæðisúrræði eftir að dómur féll í máli þroskahamlaðs manns árið 2021. Faðir ungs manns með einhverfu, sem hefur verið á biðlista í tæp fimm ár, segir stöðuna mjög erfiða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×