Lífið

Tinna Alavis greinir frá kyni barnsins

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tinna og Ísabella á Spáni.
Tinna og Ísabella á Spáni. Tinna Alavis

Áhrifavaldurinn og fegurðardísin Tinna Alavis á von á sínu öðru barni og tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að von sé á dreng.

Fyrir á Tinna dótturina Ísabellu Birtu, níu ára, með Húsafellserfingjanum Unnari Bergþórssyni.

„Ég og litli strákurinn minn. Jebb, it´s a Boy,“ skrifar Tinna við mynd af sér halda utan um kúluna í fallegu spönsku umhverfi.

Tinna Alavis

Mæðgurnar eru nú staddar í fríi á Ponent Mar á Spáni þar sem lífið virðist einkar ljúft en Tinna hefur deilt fjölda mynda af dótturinni í sólinni líkt og klipptar væru úr tímariti. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×