„Ef góður leikmaður vill koma og reyna sig með Keflavík er bara að hafa samband“ Kári Mímisson skrifar 8. júlí 2023 20:06 Sigurður Ragnar var ekki sáttur með að fá aðeins stig í dag. Vísir/Diego „Bara svekkelsi, áttum að vinna þennan leik,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 3-3 jafntefli sinna manna gegn toppliði Víkings.
Sigurður Ragnar var mjög svekktur með úrslit leiksins en Keflavík komst 1-0 yfir og var 3-2 yfir þegar komið var fram í uppbótartíma. „Í stöðunni 3-2 komumst við einir í gegn, hefðum getað komist í 4-2 en klúðrum því. Fannst þeir líka fá gefins víti og það átti maður að fjúka út af hjá þeim fyrir að slá okkar mann í andlitið. Fannst dómararnir taka of vægt á því,“ bætti Sigurður Ragnar við en Danijel Dejan Djuric fór niður við litla ef einhverja snertingu innan vítateigs skömmu eftir að Keflavík komst yfir. Sigurður Ragnar bætti svo við að hann áttaði sig ekki á því af hverju uppbótartíminn var jafn langur og raun bar vitni en sjö mínútum var bætt við. „Er stoltur af mínu liði, leikplanið gekk vel upp,“ bætti hann við áður en hann ræddi leikmannamál Keflavíkur enn og aftur. „Eigum Stefan Alexander Ljubičić inni eftir að hann fékk heilahristing á æfingu. Ef góður leikmaður vill koma og reyna sig með Keflavík er bara að hafa samband,“ sagði Sigurður Ragnar hlæjandi að lokum. Eftir jafntefli dagsins er Víkingur á toppi deildarinnar með 38 stig á toppi deildarinnar eftir 15 leiki á meðan Keflavík er í botnsæti deildarinnar með 9 stig að loknum 14 leikjum.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira