Innherji

Kvika slítur sam­runa­við­ræðum við Ís­lands­banka „í ljósi at­burða síðustu daga“

Hörður Ægisson skrifar
Sigurður Hannesson er stjórnarformaður Kviku banka.
Sigurður Hannesson er stjórnarformaður Kviku banka.

Stjórn Kviku banka telur ekki forsendur til þess að halda áfram viðræðum um mögulegan samruna við Íslandsbanka, sem hafa staðið yfir síðustu mánuði, og hefur því slitið þeim. Ekki var búið að komast að sameiginlegri niðurstöðu um skiptihlutföll. 

Í tilkynningu til Kauphallarinnar vísar stjórn Kviku til „atburða síðustu daga“ fyrir ákvörðun sinni um að slíta viðræðunum, sem eru sagðar hafa verið góðar fram til þessa, og að fyrirséð er að boðað verði til hluthafafundar hjá Íslandsbanka og mögulega stjórnarkjörs.

„Þó er ljóst að ávinningur af samruna félaganna gæti orðið verulegur og hefur stjórn Kviku lýst yfir vilja sínum til þess að hefja viðræður að nýju ef forsendur skapast,“ segir í tilkynningunni.

Fyrr í vikunni var greint frá starfslokum Birnu Einarsdóttur sem bankastjóra Íslandsbanka eftir að bankinn braut fjölmörg lög og innri reglur félagsins við sölu á hlutum í sjálfum í útboði ríkisins í fyrra. Samhliða því var Jón Guðni Ómarsson ráðinn í hennar stað sem bankastjóri en hann hefur verið framkvæmdastjóri fjármála bankans samfellt frá árinu 2011.

Bankasýslan, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka, hefur farið fram á að haldinn verði hluthafafundur og er áætlað hann verði í lok næsta mánaðar. Líklegt er að talið að þar muni fara fram stjórnarkjör en margir lífeyrissjóðir, sem eru stórir hluthafar í félaginu, hafa meðal annars kallað eftir því að kjörið verði að nýju í stjórn bankans.

Tæplega fimm mánuðir eru liðnir síðan stjórn Kviku óskaði eftir því að hefja viðræður um samruna við Íslandsbanka. Um miðjan febrúar féllst stjórn Íslandsbanka á þær viðræður og hafa þær staðið yfir síðan þar sem félögin hafa ásamt erlendum og innlendum ráðgjöfum sínum unnið að því að meta mögulega samlegð af samruna og stöðu sameinaðs félags á markaði. Til stóð að birta niðurstöður þeirrar vinnu í þessari viku en ekkert verður af því eins og sakir standa.

Samanlagt markaðsvirði félaganna um þessar mundir, sem hefur lækkað nokkuð frá því að tilkynnt var fyrst um samrunaviðræðurnar í byrjun febrúar, er um 300 milljarðar króna. Eignarhlutur ríkisins í sameinuðu félagi hefði að óbreyttu orðið ríflega 30 prósent.

Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s tilkynnti fyrr á árinu um að það hefði formlega tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku í kjölfar þess að ákveðið hefði verið að hefja viðræður um samruna við Íslandsbanka. Eins og Innherji hafði áður sagt frá því þá taldi Moodys að sameining myndi hafa jákvæð áhrif á lánshæfi beggja fyrirtækjanna. Kvika myndi verða hluti af mun stærri bankaeiningu, sem ætti að draga meðal annars úr rekstraráhættu, og fyrir Íslandsbanka yrði það til þess fallið að breikka enn frekar tekjustrauma bankans.

Innherji greindi frá því í lok marsmánaðar að Íslandsbanki hefði fengið LOGOS, stærstu lögmannsstofu landsins, og Mörkina sem lögfræðilega ráðgjafa bankans í samrunaviðræðunum. Þá var alþjóðlegi bankinn Barclays ráðinn sem leiðandi fjármálaráðgjafi en hann hefur á síðustu árum komið að ýmsum  ráðgjafaverkefnum fyrir Íslandsbanka, meðal annars við frumútboð og skráningu bankans í Kauphöllina sumarið 2021.

Kvika banki fékk hins vegar til liðs við sig lögmannsstofuna BBA//Fjeldco sem lögfræðilegan ráðgjafa í tengslum við samrunaferlið. Þá er fjármálaráðgjafi Kviku bandaríski fjárfestingabankinn Morgan Stanley, en hann var meðal annars helsti ráðgjafi Kaupþings við skráningu og sölu á hlutum félagsins í Arion banka á árunum 2018 og 2019.

Morgan Stanley fékk í kjölfarið síðan íslensku lögmannsstofuna LEX til að vera sér til aðstoðar í viðræðunum.


Tengdar fréttir

„Fýsi­legasti kosturinn“ að Kvika selji TM til Ís­lands­banka

Jakobsson Capital telur líklegt að samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku ljúki þannig að tryggingafélagið TM og Kvika eignastýring, sem greiningarfyrirtækið verðmetur á samtals 57 milljarða króna, verði seld til Íslandsbanka. Á meðan markaðsvirði Kviku er svona lágt þykir greinandanum sala eigna fýsilegasti kosturinn í stöðunni en eftir stæði mjög arðsamt lánasafn.

Stóru sam­legðar­tæki­færin á banka­markaði liggja í gegnum Kviku

Útlit er fyrir frekari samruna á fjármálamarkaði þar sem stjórnendur keppast við að leita leiða til hagræðingar á tímum hækkandi launakostnaðar og erfiðari markaðsaðstæðna. Sum af stærri fjármálafyrirtækjum landsins hafa að undanförnu mátað sig við hvort annað sem hefur nú leitt til þess stjórn að Íslandsbanka, sem fundar á morgun, mun væntanlega samþykkja ósk Kviku banka um að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Óformlegt samtal um að sameina Kviku og Arion banka, sem margir höfðu spáð fyrir um, skiluðu ekki árangri en blessun frá Samkeppniseftirlitinu við slíkum bankasamruna gæti reynst þrautin þyngri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×