Innherji

Vísitölu­sjóðir Vangu­ard keyptu fyrir marga milljarða eftir út­boð Ís­lands­banka

Hörður Ægisson skrifar
Feykilega mikil viðskipti hafa verið með bréf í Íslandsbanka eftir að fjárfestar sem tóku þátt í nýafstöðnu útboði ríkissjóðum á hlutum í bankanum byrjuðu að fá bréf sín afhend snemma í síðustu viku. Samanlögð velta á því tímabili er að nálgast um þrjátíu milljarða.
Feykilega mikil viðskipti hafa verið með bréf í Íslandsbanka eftir að fjárfestar sem tóku þátt í nýafstöðnu útboði ríkissjóðum á hlutum í bankanum byrjuðu að fá bréf sín afhend snemma í síðustu viku. Samanlögð velta á því tímabili er að nálgast um þrjátíu milljarða. Vilhelm Gunnarsson

Hlutabréfasjóðir í stýringu alþjóðlega vísitölurisans Vanguard stækkuðu verulega stöðu sína í Íslandsbanka á nokkrum dögum í liðinni viku fyrir samanlagt um fjóra milljarða króna að markaðsvirði. Eftir sölu ríkissjóðs á öllum hlutum sínum í bankanum þurftu sjóðirnir að bæta við sig bréfum á eftirmarkaði þannig að eignarhaldið væri í samræmi við þær vísitölur sem þeir fylgja.


Tengdar fréttir

Sala á Ís­lands­banka myndi auka líkur á upp­færslu hjá vísi­tölu­fyrir­tækjum

Verði af áformum stjórnvalda um að hefja að nýju söluferli á hlutum ríkisins í Íslandsbanka ætti það að hjálpa íslenska hlutabréfamarkaðinum við að færast hærra upp í gæðaflokkunarstiga hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn Kauphallarinnar. Stjórnendur hennar viðurkenna að almennt útboð við söluna, eins og lagt er til í þetta sinn, sé „flóknara í framkvæmd“ heldur en tilboðsfyrirkomulag en hafi á móti þann kost að auka frekar þátttöku almennings í hlutabréfaviðskiptum.

Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir

Fjármálaráðuneytið hefur birt lista yfir alla kaupendur í útboði á eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrr í mánuðinum. Sjóðurinn Alpha hlutabréf var meðal þeirra sem mest keyptu í útboðinu, eða fyrir 192 milljónir króna. Alpha hlutabréf ef sérhæfður sjóður í stýringu Íslandssjóða, sem eru í eigu Íslandsbanka sjálfs. Mest keypti Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, fyrir milljarð króna. 1.529 einstaklingar keyptu fyrir tuttugu milljónir króna.

Kvika vinsælasta stelpan á ballinu

Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður milli félaganna tveggja. Stjórn Arion banka óskaði eftir því í gær við stjórn Kviku að hafnar yrðu samrunaviðræður milli Arion og Kviku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×