Innlent

Bein út­sending: Ræða brot Ís­lands­banka á nefndar­fundi

Atli Ísleifsson skrifar
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, á fundi nefndarinnar í dag.
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, á fundi nefndarinnar í dag. Vísir/Vilhelm

Brot Íslandsbanka við sölumeðferð eignarhluta ríkisins í bankanum verða til umræðu á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sem hefst klukkan 13.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan, en fulltrúar frá Seðlabankanum og Bankasýslu ríkisins verða gestir fundarins.

Gestir fundarins verða:

  • Kl. 13:00: Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands, og Gunnar Þór Pétursson, nefndarmaður í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands.
  • Kl. 13:45: Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, og Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins.

Tengdar fréttir

Birna lætur af störfum hjá Ís­lands­banka

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar „með hagsmuni bankans að leiðarljósi“. Segist hún gera það til að „ró geti myndast vegna sáttar Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands“.

Nefndarfundurinn verður opinn eftir allt saman

Fundur efnahags-og viðskiptanefndar þingsins á morgun verður opinn og hefst klukkan eitt eftir hádegi. Fundað verður um brot Íslandsbanka við sölumeðferð á eignarhluta ríkisins í bankanum.

Banka­stjórn­endur rúnir trausti og þurfa að axla á­byrgð

Stjórnendur Íslandsbanka gengu fram af vanvirðingu fyrir verkefninu sem þeim var treyst fyrir þegar hlutir ríkisins í bankanum voru seldir í fyrra, að sögn forsætisráðherra. Innviðaráðherra segir augljóst að þeir þurfi að axla ábyrgð og að fullkomið vantraust ríki í garð þeirra.

Brotin geti haft mikið að segja um orð­spor Ís­lands­banka

Það að Íslandsbanki hafi hvorki greint hagsmunaárekstra með fullnægjandi hætti né tryggt að þeir sköðuðu ekki hagsmuni viðskiptavina þegar bankinn seldi hluti í sjálfum sér er ein af stærstu orðsporsáhættum bankans í sáttinni við fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Þetta segir Andri Fannar Bergþórsson, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, lögmaður hjá Advel lögmönnum og fyrrverandi nefndarmaður í fjármálaeftirlitsnefnd.

Sam­mála um al­var­leika en ó­sam­mála um á­byrgð

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eru sammála að um alvarlegt mál sé að ræða. Þau eru þó ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að ábyrgð fjármálaráðherra í því.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×