Menning

„Svo verður maður kannski fyrir valtara og hvað gerirðu þá?“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hanna Dís Whitehead er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.
Hanna Dís Whitehead er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Vísir/Vilhelm

„Ég hef rosalega gaman að því að vera á einhverjum mörkum. Með svona „questionable“ fagurfræði. Ég veit alveg að það finnst ekki öllum þetta flott og mér finnst það bara allt í lagi. Mér líður vel þar,“ segir listakonan og hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Þáttinn má sjá í spilaranum hér fyrir neðan:

Klippa: KÚNST - Hanna Dís Whitehead

Hanna Dís opnaði sýninguna Blíður ljómi í Gallery Port í tengslum við HönnunarMars og má lýsa sýningunni sem eins konar draumkenndum heimi. Hanna afmarkar sig ekki við ákveðinn listmiðil og segir forvitni einkenna listsköpun sína, þar sem hún er óhrædd við að vera hún sjálf og skapa á eigin forsendum.

Aðspurð hvort álit annarra spili veigamikið hlutverk í hennar sköpunarferli segir Hanna svo ekki vera.

„Ég er kannski svolítið eigingjörn, en þú fórnar alveg fullt fyrir það að vera í þessu. Þetta er ekki stöðug innkoma af peningum eða eitthvað svoleiðis heldur mjög svona upp og niður. Afhverju ættir þú þá að gera eitthvað annað en það sem er þinn sannleikur? Maður er að fórna það miklu að maður verður að fara sína eigin leið. Mér finnst það allavega. Það er kannski svolítið eigingjarnt, en þannig er það bara.“

Hún segir skemmtilegast að gera hlutina út frá sjálfri sér. 

„Það hefur alveg komið fyrir að fólk reynir að beina mér á réttan stað. Þú ættir kannski að fara að framleiða þetta, gera þetta, einbeita þér að einu efni eða eitthvað svoleiðis, en þá hugsar maður bara og hvað lifir maður lengi? Og svo verður maður kannski fyrir valtara eða eitthvað og hvað gerirðu þá?“

Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.

Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti af KÚNST. Berglind Rögnvaldsdóttir var viðmælandi í síðasta þætti af Kúnst en hún notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti.

Listakonan og leikstjórinn Anna Maggý reynir að skilja eftir rými fyrir túlkun og upplifun áhorfandans en ákveðin dulúð einkennir verkin hverju sinni.

Listakonan Rakel Tómasdóttir hefur verið sjálfstætt starfandi síðastliðin ár og er í grunnin menntuð í grafískri hönnun. Viðfangsefni hennar einkennast gjarnan af konum og kvenlíkamanum en hún hefur einnig ferðast ein víða um heiminn og sótt innblástur í ævintýri ferða sinna.


Tengdar fréttir

„Mig langaði bara að leyfa geir­vörtunni að njóta sín“

„Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt.

„Ég var stundum há­skælandi að mála þessi verk“

„Ég dett bara í einhverja hugleiðslu og mála án þess að hugsa of mikið. Ég leyfi því að gerast sem vill gerast,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason. Lífið tók óvænta og kærkomna stefnu hjá honum eftir að hann fékk tækifæri hjá galleríi í Chicago en síðan þá hefur hann verið að gera öfluga hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur Helgason er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Flutti úlpu­laus til Ís­lands en fann lykilinn að list­sköpunni

Benjamin Hardman flutti úlpulaus til Íslands frá Ástralíu fyrir rúmum sjö árum með um það bil þúsund fylgjendur á Instagram og draum um að geta unnið sem ljósmyndari. Hann er nú með um 725 þúsund fylgjendur þar sem hann deilir ævintýrum sínum og sinnir ástríðu sinni á ljósmyndun og myndbandsgerð af fullum krafti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hann ræðir opinskátt um lífið, listina og mikilvægi þess að elta draumana sína.

Fékk ljós að láni hjá Salvador Dali

Myndlistarkonan Sigga Björg Sigurðardóttir er óhrædd við að nálgast óþægileg viðfangsefni í list sinni. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir sýningunni Andardráttur á glugga á Ásmundarsafni þar sem verk Siggu Bjargar eiga í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar. Sigga Björg er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hún deilir sínum skapandi hugarheimi ásamt skemmtilegum sögum.

„Hann var á betra kaupi en þær við það að horfa á þær vinna“

Listakonan, vefarinn og brautryðjandinn Hildur Hákonardóttir hefur haft mikil áhrif á íslenska listheiminn með einstökum og pólitískum verkum sínum. Hún hefur með sanni átt viðburðaríkt líf og er þekkt fyrir að hafa alltaf verið nokkrum skrefum á undan. Verk hennar prýða nú Kjarvalsstaði á yfirlitssýningunni Rauður þráður sem Sigrún Hrólfsdóttir sýningarstýrir. Hildur Hákonardóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×