Blótið vék fyrir ástkæra ylhýra SS 5. maí 2023 09:58 Daníel og Kolbeinn, sem skipa dúettinn Sprite Zero Klan, þurftu að taka afstöðu til blótsyrða sem prýddu fyrri útgáfu þeirra af SS pylsulaginu. Hvernig mun lokaútgáfan hljóma? Seinni umferð Skúrsins hófst í síðustu viku en í þáttunum keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu auk þess sem keppt er um besta frumsamda lagið. Í fyrri umferð kynntumst við flytjendunum sex og heyrðum brot úr fyrstu útgáfum laga þeirra. Nú hefur hópurinn haft góðan tíma til að fínpússa bæði lögin og gera ýmsar breytingar á þeim. Daníel og Kolbeinn, sem skipa dúettinn Sprite Zero Klan, vöktu athygli í fyrri umferð fyrir að vera mjög hressir og skemmtilegir en ekki síður fyrir að blóta hressilega á ensku í útgáfu sinni af SS pylsulaginu. Lokaútgáfa þeirra er kynnt hér í ellefta þætti Skúrsins. Dómnefnd var aðeins hugsi yfir þeirri útgáfu og taldi að líklega að breyta þyrfti einhverju ef lagið ætti að fá spilun víða. Félagarnir tóku vel í þá athugasemd. „Eftir að hafa horft á fyrri þáttinn sáum við að dómnefndin talaði mikið um blótið okkar. Við sáum því að kannski væri skynsamlegt að leggjast aðeins yfir þetta,“ segja þeir Daníel og Kolbeinn. Eftir að hafa sporðrennt sitt hvorri pylsunni í miðbæ Reykjavíkur héldu þeir í næstu bókabúð og fjárfestu í samheitaorðabók. „Við þurftum að finna góð íslensk samheiti yfir helstu blótsyrðin í SS pylsulaginu okkar. Þetta eru orðin „motherfucker“, „fuck“ og „fuck it“. Við vorum því helst að leita að tveimur orðum sem byrja á „f“ og einu orði sem byrjar á „m“.“ Það verður gaman að sjá hvaða orð urðu fyrir valinu hjá strákunum en meðal þeirra orða sem voru rædd voru fláráður, marbendill og margslungna. Klippa: Skúrinn - Leitin að nýja SS pylsulaginu: Ellefti þáttur Fari þeir með sigur af hólmi eru þeir nokkuð sammála um hvað gera skuli við verðlauna upphæðina. „Ef við vinnum þá heitum við því að leggja fjármunina í að gefa enn meira af okkur. Við getum líak gert annað pylsulag? Þið heyrður þetta fyrst hér, það er annað pylsulag á leiðinni.“ Síðasti þáttur seinni umferðar Skúrsins er á morgun laugardag en þá verður útgáfa Lilju Sólar kynnt. Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja þrjú SS pylsulög áfram og velja besta frumsamda lagið. Kosning hefst á Vísi fimmtudaginn 11. maí. Landsmenn munu heyra útgáfurnar þrjár sem komast í lokaúrslit í sjónvarpi og útvarpi í sumar og í ágúst verður kosið um sigurvegarann í keppninni um besta nýja SS pylsulagið. Skúrinn Mest lesið Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið Hera komst ekki áfram Lífið „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Lífið Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Lífið Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Lífið Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ Tónlist Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Fleiri fréttir Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira
Í fyrri umferð kynntumst við flytjendunum sex og heyrðum brot úr fyrstu útgáfum laga þeirra. Nú hefur hópurinn haft góðan tíma til að fínpússa bæði lögin og gera ýmsar breytingar á þeim. Daníel og Kolbeinn, sem skipa dúettinn Sprite Zero Klan, vöktu athygli í fyrri umferð fyrir að vera mjög hressir og skemmtilegir en ekki síður fyrir að blóta hressilega á ensku í útgáfu sinni af SS pylsulaginu. Lokaútgáfa þeirra er kynnt hér í ellefta þætti Skúrsins. Dómnefnd var aðeins hugsi yfir þeirri útgáfu og taldi að líklega að breyta þyrfti einhverju ef lagið ætti að fá spilun víða. Félagarnir tóku vel í þá athugasemd. „Eftir að hafa horft á fyrri þáttinn sáum við að dómnefndin talaði mikið um blótið okkar. Við sáum því að kannski væri skynsamlegt að leggjast aðeins yfir þetta,“ segja þeir Daníel og Kolbeinn. Eftir að hafa sporðrennt sitt hvorri pylsunni í miðbæ Reykjavíkur héldu þeir í næstu bókabúð og fjárfestu í samheitaorðabók. „Við þurftum að finna góð íslensk samheiti yfir helstu blótsyrðin í SS pylsulaginu okkar. Þetta eru orðin „motherfucker“, „fuck“ og „fuck it“. Við vorum því helst að leita að tveimur orðum sem byrja á „f“ og einu orði sem byrjar á „m“.“ Það verður gaman að sjá hvaða orð urðu fyrir valinu hjá strákunum en meðal þeirra orða sem voru rædd voru fláráður, marbendill og margslungna. Klippa: Skúrinn - Leitin að nýja SS pylsulaginu: Ellefti þáttur Fari þeir með sigur af hólmi eru þeir nokkuð sammála um hvað gera skuli við verðlauna upphæðina. „Ef við vinnum þá heitum við því að leggja fjármunina í að gefa enn meira af okkur. Við getum líak gert annað pylsulag? Þið heyrður þetta fyrst hér, það er annað pylsulag á leiðinni.“ Síðasti þáttur seinni umferðar Skúrsins er á morgun laugardag en þá verður útgáfa Lilju Sólar kynnt. Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja þrjú SS pylsulög áfram og velja besta frumsamda lagið. Kosning hefst á Vísi fimmtudaginn 11. maí. Landsmenn munu heyra útgáfurnar þrjár sem komast í lokaúrslit í sjónvarpi og útvarpi í sumar og í ágúst verður kosið um sigurvegarann í keppninni um besta nýja SS pylsulagið.
Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja þrjú SS pylsulög áfram og velja besta frumsamda lagið. Kosning hefst á Vísi fimmtudaginn 11. maí. Landsmenn munu heyra útgáfurnar þrjár sem komast í lokaúrslit í sjónvarpi og útvarpi í sumar og í ágúst verður kosið um sigurvegarann í keppninni um besta nýja SS pylsulagið.
Skúrinn Mest lesið Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið Hera komst ekki áfram Lífið „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Lífið Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Lífið Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Lífið Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ Tónlist Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Fleiri fréttir Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira