Samfylkingin komin í 26 prósent Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. apríl 2023 10:32 Kristrún Frostadóttir tók við sem formaður Samfylkingarinnar í lok október í fyrra. Vísir/Vilhelm Fylgi Samfylkingarinnar hefur aukist um tæp sextán prósentustig frá Alþingiskosningum í september 2021. Fylgi flokksins mælist nú 25,7 prósent, tæpum sjö prósentustigum meira en fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Í nýrri skoðanakönnun, sem Maskína gerði fyrir fréttastofu, kemur fram að samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna og nemur nú 37 prósentum. Stærstur ríkisstjórnarflokkanna er Sjálfstæðisflokkurinn, með 18,7 prósenta fylgi, þar á eftir Framsóknarflokkurinn með 10,2 prósenta fylgi og Vinstri græn með 8,2 prósent. Fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki verið lægra en þeir fengu samtals 54,4 prósent atkvæða í Alþingiskosningunum. Þá hefur fylgi Samfylkingarinnar aukist mjög síðan í síðustu þingkosningum þegar flokkurinn fékk 9,9 prósent atkvæða. Hann mælist nú með 25,7 prósenta fylgi og hefur það aukist jafnt og þétt frá síðasta sumri, þegar flokkurinn fór lægst í 8,3 prósenta fylgi. Stjórnarandstaðan með 63 prósenta fylgi Samfylkingin er ekki eini stjórnarandstöðuflokkurinn sem hefur bætt við sig fylgi þó hún sé lang stærst. Fylgi Viðreisnar mælist nú 10,6 prósent en var 8,3 í þingkosningunum. Fylgi Pírata mælist 11,4 prósent en var 8,6 prósent í kosningunum og Miðflokkurinn hefur aukið fylgi sitt úr 5,4 prósentum í 6 prósent. Fylgi Flokks fólksins hefur minnkað um helming frá þingkosningum. Flokkurinn hlaut 8,8 prósent atkvæða en mælist nú með 4,4 prósenta fylgi. Það er minna en fylgi Sósíalista, sem nú mælist 4,9 prósent.
Alþingi Skoðanakannanir Samfylkingin Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira