Lífið

Prinsinn tók við pöntun frá steinhissa viðskiptavini

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hertogahjónin fóru á kostum í heimsókninni á indverska veitingastaðinn og slógu á létta strengi með starfsfólki og gestum.
Hertogahjónin fóru á kostum í heimsókninni á indverska veitingastaðinn og slógu á létta strengi með starfsfólki og gestum. WPA Pool/Getty

Vilhjálmur Bretaprins kom viðskiptavini á indverskum veitingastað í Birmingham á óvart í gær þegar hann tók við pöntun hans símleiðis fyrir hönd starfsfólks veitingastaðarins.

Myndband af samskiptunum má horfa á neðst í fréttinni. Vilhjálmur var staddur ásamt eiginkonu sinni hertogaynjunni Katrín Middleton á veitingastaðnum Indian Streatery í miðborg Birmingham. 

Þangað voru hjónin mætt til þess að gæða sér á ljúffengum indverskum réttum. Vel fór á með hjónunum og starfsfólki staðarins.

Viðskiptavinurinn sem ræddi við Vilhjálm símleiðis, maður að nafni Vinay Aggarwal, segir í samtali við BBC að hann hafi verið í sjokki að hafa komist svo að því að það hefði verið sjálfur prinsinn sem hefði tekið á móti pöntun hans.

„Ég þekkti röddina hans alls ekki, þetta er í fyrsta skiptið sem ég heyri hann tala í síma, svo ég hélt í raun að þetta væri bara einhver sem væri að taka við pöntuninni minni,“ segir Vinay en hann mætti á veitingastaðinn ásamt eiginkonu sinni Ankita Gulati síðdegis í gær.


Tengdar fréttir

Meg­han af­þakkar boð í krýningu Karls

Harry Bretaprins mætir án eiginkonu sinnar Meghan Markle þegar Karl faðir hans verður krýndur konungur í byrjun maí. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Buckingham höll.

„Ég vona að þau verði látin sitja á Íslandi“

Harry Bretaprins og Meghan Markle hefur verið boðið að vera viðstödd krýningu föður hans Karls III Bretakonungs 6. maí næstkomandi en ef marka má heimildarmenn Daily Mail hyggjast meðlimir konungsfjölskyldunnar hunsa þau ef þau mæta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×