Handbolti

Hetjan í bikarúrslitaleiknum framlengir við Aftureldingu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Igor Kopyshynskyi heldur kyrru fyrir í Mosfellsbænum.
Igor Kopyshynskyi heldur kyrru fyrir í Mosfellsbænum. vísir/diego

Úkraínumaðurinn Igor Kop­is­hinsky hefur framlengt samning sinn við bikarmeistara Aftureldingar til tveggja ára.

Igor kom til Aftureldingar frá Haukum fyrir tímabilið. Hann hefur spilað vel með Mosfellingum í vetur, aldrei betur en í bikarúrslitaleiknum gegn Haukum þar sem hann skoraði tíu mörk.

Í Olís-deildinni hefur Igor skorað 61 mark í nítján leikjum. Afturelding er í 5. sæti þegar tveimur umferðum er ólokið. Annað kvöld mætir Afturelding Selfossi fyrir austan fjall.

Igor kom fyrst hingað til lands 2016 og gekk í raðir Akureyrar. Hann hefur leikið að mestu hér á landi síðan þá, fyrst með Akureyri, svo Þór, síðan Haukum og loks Aftureldingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×