Sport

Anton Sveinn á góðu skriði

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Anton Sveinn McKee lenti í öðru sæti um helgina.
Anton Sveinn McKee lenti í öðru sæti um helgina. Sundsamband Íslands

Sundmaðurinn Antonn Sveinn McKee endaði um helgina í öðru sæti í 200 metra bringusundi á Tyr-mótaröðinni. Anton Sveinn er í fínum málum fyrir Íslandsmeistaramótið sem fram fer í Laugardalslaug þann 1. til 3. apríl næstkomandi.

Anton Sveinn hefur undanfarna daga tekið þátt í Tyr-mótaröðinni sem fram fer í Fort Lauderdale í Bandaríkjunum. Keppti hann í 200 metra bringusundi og endaði í öðru sæti.

Synti hann á 2:10,86 mínútum en sigurvegarinn var Will Licon frá Bandaríkjunum, hann synti á 2:10,77 mínútum.

Anton Sveinn á best 2:08,74 í 200 metra bringusundi en það var tími hans á HM í Búdapest síðasta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×