Lífið

Leik­listar­kennarinn hvatti hana til þess að skrá sig í Idol

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Ísland í dag kíkti í heimsókn til Bíu.
Ísland í dag kíkti í heimsókn til Bíu. Stöð 2

Hin tuttugu og þriggja ára gamla Bía hefur sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna í Idolinu undanfarnar vikur. Ísland í dag heimsótti Bíu til þess að kynnast stelpunni á bak við þessa risastóru rödd.

Bía heitir fullu nafni Beatriz Aleixo og er fædd og uppalin í Portúgal. Hún flutti hingað til lands árið 2008 þegar hún var átta ára gömul.

„Frá því ég man eftir mér hef ég alltaf verið að syngja, syngja örugglega meira en ég tala,“ segir Bía sem segist hafa sungið á hvaða tungumáli sem er. Hún segist þó hafa sérstakt dálæti á því að syngja á móðurmáli sínu, portúgölsku.

Bía er nemandi í Borgarholtsskóla þar sem hún er á stuðningsfulltrúabraut. Það var einmitt Flosi, leiklistarkennari Bíu í Borgó, sem benti henni á Idolið og hvatti hana til þess að skrá sig. Bía sló til og heillaði dómnefnd og áhorfendur strax í fyrsta þætti.

Tók dívulögin til þess að sýna fólki hvað hún gæti

Bía rúllaði upp lögum með dívum á borð við Beyoncé og Whitney Houston eins og ekkert væri. Þó svo að hún hafi tekið stórar ballöður í keppninni segir hún það ekki endilega vera þau lög sem hún hlustar mest á.

„Ég var að vonast til þess að þetta myndi koma mér áfram. Mig langaði til þess að sýna hvað ég gert mikið með röddinni minni.“

Risastór rödd hennar og einlæg gleði komu henni alla leið í undanúrslitin en þar lauk hennar keppni. „Ég var alls ekki sár,“ segir Bía sem segist hafa komist mun lengra en hún hafði átt von á.

Bía tók rúllaði upp hverri kraftballöðunni á fætur annarri.STÖÐ 2/GOTTSKÁLK DAÐI BERNHÖFT REYNISSON

Er að reyna fóta sig í tónlistarbransanum

Bía segist ekki vita hvar hún ætlar að búa í framtíðinni eða hvað hún ætlar að læra í háskólanum en eitt veit hún og það er að hún ætlar að syngja.

„Eins og er er ég að reyna finna mig í tónlistarheiminum og komast inn í bransann og kynnast fólki og reyna að búa til nafn fyrir mig.“

Tónlistarfólkið Ed Sheeran og Billi Eilish eru miklar fyrirmyndir Bíu og langar hana að feta í þeirra fótspor og semja tónlist sem byggir á eigin lífsreynslu.

„Ég er ekki byrjuð að semja en það er planið, að byrja á því bara strax,“ segir hin lífsglaða Bía.

Draumurinn að geta sungið fyrir fólk

Að lokum er Bía spurð hvar hún sjái sjálfa sig fyrir sér eftir fimm ár.

„Vonandi að semja tónlist og halda tónleika. Vonandi gift, kannski komin með börn, það væri ógeðslega næs. En orðin bara söngkona og vinna við það.“

„Það er algjör draumur, það er númer eitt, að vinna við það að syngja fyrir fólk.“
Klippa: Ísland í dag - Hlustar ekki endilega á lögin sem hún syngur

Tengdar fréttir

Ruglaði saman Bubba byggi og Bubba Morthens

Gústi B fékk Idol keppendur í skemmtilegan leiklistarleik í síðasta þætti. Þar þurftu þau að túlka kvikmyndatitla með látbragði. Keppnisskapið var augljóslega meira hjá sumum keppendum en öðrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×